Læknablaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 77
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
161
Hæstaréttardómur um fóstureyðingu
Réttindi kvenna varin
Fyrir nokkrum árum synjaði
úrskurðarnefnd um fóstureyð-
ingu konu um fóstureyðingu.
Landlæknir vísaði konunni til
kvensjúkdómalæknis með vísan
til þess að ákvörðun „fóstureyð-
ingarnefndar“ væri einungis
bindandi eftir 16. viku þungunar.
A þessum tímapunkti var konan
komin tæpar 13 vikur á leið.
Fóstureyðing var framkvæmd
með vísan til félagslegra raka.
Svo undarlega brá við að
„úrskurðarnefndin“ kærði land-
lækni og kvensjúkdómalækninn
til ríkissaksóknara. Kæruefnið
var ólögmæt aðstoð við fóstur-
eyðingu. Viðurlög ef sök sannast
eru allt að fjögurra ára fangelsi!
Ríkissaksóknari fór fram á
lögreglurannsókn sem tók Iang-
an tíma. Ari síðar vísaði ríkis-
saksóknari þeim hluta málsins
frá er varðaði landlækni en lagði
fram ákæru á hendur kvensjúk-
dómalækninum. Héraðsdómur
féll alfarið kvensjúkdómalækn-
inum í vil.
Málinu var áfrýjað til
Hæstaréttar og farið fram á að öll
vitni er leidd voru fyrir héraðs-
dóm yrðu kölluð fyrir Hæstarétt
sem er mjög óvenjuleg máls-
meðferð ef ekki einstök. Oneit-
anlega var málið því sótt af
hörku.
í nóvember 1997 féll dómur
Hæstaréttar, þar sem dómur
héraðsdóms var í einu og öllu
staðfestur.
Oneitanlega vekur athygli að
nefndarmenn í „úrskurðarnefnd-
inni“ túlka lögin ranglega. Að
vísu mun túlkun lagabókstafs
nokkuð hafa ruglað, þá er ekki
túlka lög vandlega, að fæðinga-
deild Landspítalans tók upp þann
sið fyrir rúmum 20 árum að vísa
öllum konum sem komnar voru
12 vikur eða lengra á leið til
„úrskurðarnefndar".
Landlæknir tjáði þá yfirlækni
að slík gerð væri ekki lögum
samkvæmt. Landlækni var þá
tjáð að þessi ráðstöfun væri gerð
með samþykki Heilbrigðisráðu-
neytisins. Síðan hefur núverandi
yfirlæknir kvensjúkdómadeildar
fellt úr gildi framangreinda
reglu.
Ljóst má vera að nefnd sem
túlkar lög landsins á svo gróflega
rangan hátt, skerðir réttindi
kvenna í veigamiklu máli og
tekur sér stjórnsýsluvald sem
ekki er lögbundið getur ekki
setið áfram. Nefndin hefur nú
sagt af sér og telur að hún hafi
ekki úrskurðarvald. Nefndin hef-
ur úrskurðarvald varðandi fóst-
ureyðingu eftir 16. viku lögum
samkvæmt. Undirstrikar þessi
lagatúlkun vel túlkunarmáta
fyrrverandi úrskurðarnefndar.
Óskiljanlegt er með öllu að
málinu var ekki vísað til
lögskýringaraðila svo sem
Lagastofnunar Háskóla íslands í
stað þess að kæra málið af fullri
hörku með kröfu um allt að
fjögurra ára fangelsisrefsingu
fyrir landlækni og kvensjúk-
dómalækninn. Eftir stendur:
Dómgreind lærist ekki á bókum.
Ólafur Olafsson landlæknir
✓
Heilbrigðistækni á Islandi
Rannsóknarráð íslands
(Rannís) stendur nú fyrir úttekt
á heilbrigðistækni á Islandi í
samvinnu við Samtök iðnaðar-
ins, Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið og Heilbrigðis-
tæknifélag Islands. Heilbrigðis-
tækni tekur yfir það svið sem
tengist tækjabúnaði, tækni og
tækniþekkingu sem notuð er á
heilbrigðisstofnunum og starf-
semi tengdri líftækni, heilsu-
vernd og læknavísindum. Hér er
að stórum hluta um að ræða það
svið sem á ensku er kallað bio-
medical engineering.
Meginmarkmið úttektarinnar
er þríþætt:
1. Uttekt á stöðu heilbrigðis-
tækni á Islandi.
2. Stefnumótun og skilgrein-
ing markmiða.
3. Tillögur að aðgerðum til að
ná settum markmiðum.
Rannís hefur skipað verk-
efnisstjórn og ráðið verkefnis-
stjóra, Jón Braga Björgvinsson
hjá Skyn ehf, til að vinna að
framgangi málsins.
Búið er að setja upp vefsíðu
fyrir verkefnið. Þeir sem hafa
aðgang að tölvupósti eða vef-
skoðunarforritum eru eindregið
hvattir til að nota þann miðil en
aðrir geta fengið sendar upplýs-
ingar í pósti.
Vefsíða:
http://www.skyn.is/ht
Tölvupóstur: ht@skyn.is
Póstfang: Skyn ehf,
Skúlagötu 63, 105 Reykjavík,
b/t Jóns Braga Björgvinssonar.
Haldinn verður stefnumótun-
arfundur dagana 25. og 26. febr-
úar á Hótel Örk í Hveragerði.
Stefnt er að því að þátttakendur
verði 30-40 talsins. Samtök iðn-
aðarins sjá um skipulagningu
fundarins.
Úr fréttatilkynningu