Læknablaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
143
Rúmt ár frá stofnun íslenskrar erfðagreiningar
Fjórtán sjúkdómar í rannsókn nú
og fleiri f undirbúningi
íslensk erfðagreining hefur
nú starfað í rúmt ár en tilgang-
ur fyrirtækisins er að stunda
rannsóknir í erfðafræði,
hvernig sjúkdómamynstur
tengjast hugsanlega ættum og
leita að stökkbreytingum í gen-
um. Starfsmenn eru í dag
orðnir 110 og eru nú í gangi
rannsóknir á 14 sjúkdómum
og í undirbúningi eru fleiri
rannsóknir. Kári Stefánsson,
forstjóri fyrirtækisins, greindi
í samtali við Læknablaðið frá
helstu þáttum í starfi Islenskr-
ar erfðagreiningar.
Að íslenskri erfðagreiningu
standa bæði íslenskir og erlendir
fjársterkir aðilar. Nokkur banda-
rísk fyrirtæki lögðu fram 12
milljónir dollara sem áhættufé í
upphafi en meðal eigenda eru
einnig íslenskir aðilar. Kári Stef-
ánsson er helsti frumkvöðullinn
að stofnun fyrirtækisins og tókst
honum að virkja áhuga erlendra
aðila á fyrirætlunum íslenskrar
erfðagreiningar vegna þeirrar
sérstöku aðstöðu sem hér er fyrir
hendi, einsleit og einangruð þjóð
um aldir þar sem auðvelt er að
rekja ættir fram og til baka og til
er áratuga safn af sýnum sem
tekin hafa verið vegna ýmissa
sjúkdóma. I upphafi var lagt upp
með að rannsóknarstarf fyrirtæk-
isins væri tryggt til fimm ára
burtséð frá því hverjar tekjurnar
yrðu af starfseminni. Kári segir
nú hilla undir að samningar náist
við enn eitt lyfjafyrirtækið sem
myndi þýða að enn fleiri stoðum
yrði rennt undir reksturinn næstu
árin.
„Hjá okkur starfa í dag um 110
manns, svo til allir með háskóla-
menntun. Það eru líffræðingar og
læknar, fólk með doktorsgráðu í
hinum ýmsu greinum og síðan
tölfræðingar og tölvuvísinda-
menn. Á næstunni sjáum við
fram á aukin verkefni og því geri
ég ráð fyrir að starfsmannafjöld-
inn verði kominn í um 200
manns á miðju ári.“
Er nóg af sérfræðingum á
lausu?
„Við höfum að minnsta kosti
ekki ennþá þurft að bíða eftir
fólki eða leita því jafnan berast
mjög margar umsóknir þegar
störf eru auglýst svo þetta virðist
eftirsóttur vinnustaður. Það staf-
ar bæði af því að við greiðum
heldur hærri laun en aðrar rann-
sóknarstofnanir, hér eru ný og
spennandi verkefni í gangi og
fjármagn hefur verið tryggt til
rekstrarins í ákveðinn tíma, auk
þess sem við erum stöðugt að
leita samstarfs við erlend sterk
lyfjafyrirtæki vegna hugsanlegr-
ar þróunar lyfja sem byggjast á
niðurstöðum rannsókna okkar.
Starfsmenn okkar eru að lang-
mestum hluta fslendingar, fólk
sem hefur verið í starfi bæði hér-
lendis og erlendis og fólk sem
hefur nýlokið háskólanámi. Nú
þegar fjölgun stendur fyrir dyr-
um höfum við áætlað að um 20%
starfsfólksins verði erlent."
Meðal sjúkdóma sem eru til
rannsóknar í dag má nefna MS,
sykursýki, astma, skjálfta og
Hjá íslcnskri erfðagreiningu er
nú unnið að rannsóknum á 14
sjúkdómum og á næstunni
munu fleiri bætast við.
Ljósm.. -jt-
geðræna sjúkdóma. Kári segir að
hér sé um að ræða byrjun á mjög
umhverfisvænum iðnaði og að
tækifæri sé fyrir íslendinga að
leggja mjög mikið af mörkum í
erfðafræðirannsóknum á nýjan
hátt. Með tilkomu fyrirtækisins
hafi fengist fjármagn og mögu-
leiki sé á margs konar tengdum
iðnaði.
Fyrir liggur að fyrirtækið mun
stækka um helming á árinu og
eru samningar um það langt
komnir. Islensk erfðagreining er
til húsa á fyrstu hæð hússins við