Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1998, Side 94

Læknablaðið - 15.02.1998, Side 94
178 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Hluti þátttakanda á XII. þingi Félags íslenskra lyflœkna sem lialdið var á Sauðárkráki 7.-9. júní 1996 XIII. þing Félags íslenskra lyflækna á Akureyri 12.-14. júní 1998 Skilafrestur ágripa er 15. apríl Þing Félags íslenskra lyflækna, hið XIII. í röðinni, verður haldið á Akureyri dagana 12.-14. júní næstkomandi. Þingstaður er Verkmenntaskólinn á Akureyri og stend- ur þingið frá hádegi á föstudegi til síðdegis á sunnudegi. Á þinginu verður að venju frjáls erindaflutningur og kynning á veggspjöldum auk þess sem að minnsta kosti tveimur gestafyrirlesurum verður boðið erlendis frá. Við erindaflutning verður unnt að nota glærur og slædur. Semja þarf sérstaklega um annan mögulegan tækjabúnað. Frágangur ágripa Ágrip erinda og veggspjalda munu birtast í Fylgiriti Læknablaðsins sem kemur út í byrjun júní. Skilafrestur ágripa er 15. apríl næstkomandi. * Öll ágrip skulu send með tölvupósti, sem viðhengi, til Birnu Þórðardóttur Lækna- blaðinu, Hlíðasmára 8, Kópavogi, netfang birna@icemed.is * Ágrip sem ekki er unnt að senda rafrænt skulu send á disklingi ásamt útprenti. Taka þarf fram vinnsluumhverfi. * Hámarkslengd ágripa er 2000 letureiningar (characters). * Semja þarf sérstaklega um birtingu mynda og grafa. * Eftirtalin atriði komi fram í þeirri röð sem hér segir: titill ágrips, nöfn og vinnu- staðir höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður, ályktanir. * Nafn flytjanda skal feitletrað. Verðlaun Við lok þingsins verða veitt tvenn verðlaun. Annars vegar úr Vísindasjóði lyflækn- ingadeildar Landspítalans, kr. 50.000 fyrir framúrskarandi rannsókn og erindi ungs læknis og hins vegar veitir Félag íslenskra lyflækna kr. 25.000 fyrir besta framlag stúdents. Þátttökugjald Almennt gjald kr. 8.500, kr. 6.000 fyrir unga lækna og frítt fyrir stúdenta. Pantanir Birna Þórðardóttir Læknablaðinu skráir þátttakenda og tekur við pöntun um gist- ingu frá og með 1. apríl, sími: 564 4104, bréfsími: 564 4106, netfang: birna@icemed.is Flugferðir Flugferðir í tengslum við þingið verða auglýstar síðar.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.