Læknablaðið - 15.03.1998, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
229
Sterk staða Lífeyrissjóðs lækna
Aðalfundur Lífevrissjóðs
lækna var haldinn í nóvember
síðastliðnum. A aðalfundinum
var kjörin nv stjórn sjóðsins og
skipa hana nú Eiríkur
Benjamínsson formaður, Þor-
kell Bjarnason ritari og Grétar
Olafsson meðstjórnandi. Úr
stjórn gekk Kristrún Bene-
diktsdóttir fráfarandi formað-
ur, en hún hafði setið se\ ár í
stjórn.
Að sögn Ragnars Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra sjóðs-
ins hefur sú hefð skapast að
skipta ekki um fleiri en einn
mann í senn í stjórn og er for-
maður hverju sinni sá stjórnar-
manna sem lengst hefur setið, en
alls geta menn setið sex ár í senn
í stjóm sjóðsins. Ragnar kvað
þessa tilhögun hafa gefist vel og
skapaðíestu og samfellu í starfi.
Á aðalfundinum var lögð fram
tryggingafræðileg úttekt, unnin
af Bjarna Guðmundssyni trygg-
ingastærðfræðingi. Úttektin mið-
ast við árslok 1996. Helstu nið-
urstöður eru þær að eignir sjóðs-
ins eru 45% umfram áfallnar
skuldbindingar en 17% sé tekið
mið af heildarskuldbindingum.
I ljósi þessara niðurstaðna
samþykkti stjórnin að auka rétt-
indi allra sjóðfélaga um 10% aft-
urvirkt frá og með 1. janúar
1997. Þetta þýddi til dæmis að
allir bótaþegar fengu greidda
uppbót fyrir allt árið 1997.
Lífeyrissjóður lækna er nú 15.
stærsti lífeyrissjóður landsins og
námu heildareignir hans í árslok
1996 rúmum 6,2 milljörðum eins
og fram kom í ársreikningi er
birtist í októberhefti Lækna-
blaðsins (Læknablaðið 1997; 83:
694-5). Þar kom einnig fram að
raunávöxtun eða nettó fjármuna-
tekjur sem hlutfall af ársmeðal-
tali hreinnar eignar var 7,06%
miðað við neysluverðsvísitölu
og 11,4% miðað við neyslu-
verðsvísitölu og mat hlutabréfa á
markaðsverði.
Oft er rætt um óhagkvæmni og
jafnvel bruðl í rekstri lífeyris-
sjóða en sjóðfélagar í Lífeyris-
sjóði lækna mega nokkuð vel við
una. Árið 1996 var rekstrar-
kostnaður sem hlutfall af ið-
gjöldum 3,08% og kostnaður
sem hlutfall af meðaltali hreinn-
ar eignar 0,21%. Hvort tveggja
telst lágt og vel sambærilegt við
aðra svipaða og jafnvel mun
stærri sjóði.
-bþ-
Aðalfundur
Læknafélags Reykjavíkur
Aöalfundur Læknafélags Reykjavíkur 1998 veröur haldinn
fimmtudaginn 19. mars næstkomandi kl. 20:30 í Hlíðasmára 8.
Dagskrá
1. Venjuleg aöalfundarstörf
2. Kosningar
a. Aðalstjórn LR: formaöur, gjaldkeri og ritari
b. Sex menn í meöstjórn til tveggja ára og einn til eins árs
c. Þrír varamenn
d. Fimmtán fulltrúar á aðalfund LÍ1998 og jafnmargir til vara
e. Tveir endurskoðendur og tveir til vara
Á félagsfundi 19. febrúar síöastliöinn voru kynnt framboð samkvæmt liðum a-d.
3. Önnur mál
Stjórn LR