Læknablaðið - 15.03.1998, Page 67
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
245
krabbameinsskráningu, 3)
fræðslu um krabbamein og for-
varnir gegn því og 4) rannsóknir
á krabbameini. Enn í dag tæp-
lega 50 árum síðar vinna krabba-
meinsfélögin ötullega að þessum
málum og nánast eingöngu að
þeim. Sýnir það og sannar
hversu framsýnn hann var.
Garðyrkjumaðurinn
Lóðirnar í kringum heimilið í
Suðurgötunni og Rannsóknastof-
una við Barónsstíg með trjám og
blómum sögðu sína sögu af yndi
prófessorsins af fallegu um-
hverfi. Það sem þó gerði hann
sérstakan sem gróðurræktar-
mann var gróðurhúsið í Suður-
götu og orkídeuræktin. Persónu-
lega man ég eftir að hafa séð
orkídeurnar á landbúnaðarsýn-
ingu sem haldin var í gamla
Tívolí í Vatnsmýrinni og sérstak-
lega að ræktunartími hvers
blóms var sjö ár og ævi þess úr
því stutt. I annað sinn og ekki
síður eftirminnilegt var kvöld-
boð sem þau hjónin, Ingibjörg og
Níels, héldu okkur og nokkrúm
öðrum hjónum, því húsbóndinn
stóð í anddyri og nældi orkídeu í
barm hverrar frúar. Að ræktun
þeirra blóma hafði hann unnið í
sjö ár og gaf þau þannig af sinni
alkunnu rausn. Eftir Dungal lig-
gja þrjár ritgerðir um orkídeu-
rækt. Ein þeirra er um geymslu á
frjói og fræjum með þurrfryst-
ingu (5). Önnur er um ræktunar-
möguleika á 64. gráðu norðlægr-
ar breiddar (6). í upphaft þeirrar
greinar segir hann svo:
„Practically all decorative
orchids of the world are natives
of the tropics and semitropics, a
broad belt extending 20 to 30
degrees on either side of the
Equator, where frosts are
unknown and where the distri-
bution of light is even, with small
seasonal differences in the
length of night and day. To try to
cultivate them at a latitude of64
degrees, amid frost and snow
and almost complete darkness in
winter and in one long day in
summer when the nights never
get dark, may seem presumptu-
ous to most of us. I am reminded
of Boswell's question to Dr.
Johnson, „ Wltat do you think,
Sir, of women as public spea-
kers?“ „The same as of bears
dancing", replied tlie doctor.
„ You don 't expect a bear to
dance well, but to be able to
dance at all is remarkable. “
And so you would not expect
much from orchid growing in
Iceland. Being a confirmed
optimist, who does not believe
much in the word „impossible",
I wanted to try orcliid growing
after having for several years
been a gardening amateur. And
after ten years of trying and
growing orchids, I must confess
that I am neglecting my garden
shamefully and giving all my
spare time to my orchids, all the
year round. “
Heimsmaðurinn
Nafn Níelsar Dungals var
þekkt alþjóðlega, ekki aðeins
vegna læknisfræði heldur einnig
vegna orkídeuræktar. Vitnað var
í hann í kennslubók þeirri sem
við lásum í meinafræði. Hans var
getið í bók sem kom út árið
1946, Biographical
Encyclopedia of the World, í
kaflanum WHO is important in
medicine. Hann var mikill
tungumálamaður. Bjarki Magn-
ússon læknir minnist mikillar
veislu sem haldin var í London í
lok læknaþings og bauð Níels
honum til veislunnar. A aðra
hönd Níelsar sat frönsk kona og
á hina austurrísk. A meðan á
borðhaldinu stóð hélt prófessor-
inn uppi samræðum við þær ým-
ist á fljúgandi frönsku eða
þýsku. Síðan hafði honum verið
falið að flytja þakkarávarp fyrir
hönd útlendra gesta og hélt
Dungal það á reiprennandi ensku
með fyndnu ívafi sem hann hlaut
fyrir dynjandi lófaklapp. I ritinu
sem síðar var gefið út um þingið
var sérstaklega getið um færni
erlendra gesta á enska tungu og
nafn Dungals tekið sem dæmi.
Niðurlag
Stofnun sú sem í upphafi hóf
göngu sína undir stjórn Stefáns
Jónssonar varð síðan undir hand-
leiðslu Níelsar Dungals að þeim
meiði sem flestar rannsóknar-
greinar í læknisfræði standa á í
dag á Islandi. Stefán starfaði
sennilega einn þann tíma sem
hann var hér á landi. Guðný
Guðnadóttir frænka Níelsar kom
til starfa með honum strax í upp-
hafi ársins 1926 og var því sann-
anlega fyrsti íslenski meinatækn-
irinn. Hún hvarf til framhalds-
náms til Danmerkur 1934 og
næsta ár hóf hún störf við ný-
stofnaða Rannsóknastofu Land-
spítalans sem hún veitti forstöðu
í 32 ár og gekk þar yfirleitt und-
ir nafninu Gauja á Rannsókn.
Sýkladeild Landspítalans er fyrir
löngu orðin sjálfstæð deild. Út
frá starfinu á Keldum varð til
Rannsóknastofa Háskólans í
veirufræði og síðar varð til
Rannsóknastofa Háskólans í
ónæmisfræði. Níels Dungal lét
byggja Blóðbankann. Má því
segja að sá mæti og atorkusami
læknir og vísindamaður sé hinn
eiginlegi faðir læknisfræðilegra
rannsókna á íslandi.
HEIMILDIR
1. Alþýðublaðið 4. nóvember 1965.
2. Morgunblaðið 4. nóvember 1965.
3. Morgunblaðið, 21. desember
1934.
4. Fréttabréf um heilbrigðismál
1949; 1:1
5. Dungal N. Preservation of Orchid
Pollen and Seeds by Dry
Freezing. Am orchid soc Bull
1953; 22: 863-4.
6. Dungal N. Orchid Culture af High
Latitudes. The Report of the Third
World Orchid Conference 1960;
234-8.