Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1999, Page 18

Læknablaðið - 15.07.1999, Page 18
608 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Percent 100 ,<# f <? ,<b° ^ <b° <?' ^ s* s* ^ ^ ^ ^ ^ ^ Periods Fig. 7. Percentage of the Icelandic population living in urban nuclei with 200 inhabitants and over. bils- og fæðingarárgangaútreikningar geta verið mjög næm aðferð til að sundurgreina flókin áhrif sem einföld skoðun á línuritum leiðir ekki í ljós. Fæðingarárgangaáhrifm í valaðgerðunr eru sérstaklega mikilvæg því þau staðfesta enn frekar að upplag til ætisára mót- ast á fyrstu árum ævinnar, svipað og gildir um fylgikvilla og dauðsföll af völdum ætisára. Allar niðurstöður okkar styðja það álit að ætisár séu í raun einn sjúkdómur. Fækkun æti- sára tengd fæðingarárgöngum skýrir sennilega hvers vegna valaðgerðum fækkaði áður en farið var að nota H^-blokka, en þeir voru fyrst not- aðir á Islandi 1976 (20). Veikleiki þessarar rannsóknar er að um fáa sjúklinga er að ræða í litlu þýði. Vegna þess hve sjúklingahópurinn er lítill var ekki hægt að greina á nrilli maga- og skeifugarnarsára. Samt fæst mjög skýr mynd af faraldsfræði ætisára og má vel vera að þetta stafi af því hve gögnin eru einsleit og fullkomin, þýðið vel skilgreint og stöðugt. Gögnin um blæðingar hljóta samt senr áður að vera ónákvæm þar sem aðeins er litið á þær blæðingar sem meðhöndlaðar voru með að- gerð. Ennfremur var blæðingu fyrst gefið núm- er í 9. útgáfu af Alþjóðlegri flokkun sjúkdóma (International Classification of Diseases) sem var fyrst notuð á íslandi 1982. Gögn fyrir þann tíma eru ekki eins áreiðanleg. Hins vegar er rétt að benda á að ófullkomin gögn, með skekkjum sem stafa af breytingu á skráningu og meðferð, eiga frekar að þurrka út heldur en auka fæðingarárgangaáhrif og slíkar skekkjur eiga mun frekar að skapa tímabils- áhrif sem alls ekki fundust í þessari rannsókn. Hvað gerðist á íslandi upp úr aldamótum sem skapaði þau skilyrði að fæðingarárgang- arnir báru með sér háa tíðni ætisára í gegnum ævina? Fram að þeim tíma var á íslandi ríkj- andi bændasamfélag þar sem hver fjölskylda var meira eða minna sjálfstæð eining. Upp úr aldamótum hófust búferlaflutningar vegna breyttra atvinnuhátta og fólk flutti úr dreifbýli í þéttbýli. Á 30 ára tímabili hækkaði hlutfall þeirra sem bjug^u í þorpum úr 14% í 51% (mynd 7) (21). Á þessum tíma var húsakostur þröngur og vatn mengað (22). Banvænar sýk- ingar voru mjög algengar en eftir 1920 dró úr þeim. Þannig var 20-30 ára tímabil frá því flutningar úr sveitum í þorp hófust þangað til húsnæðiþrengsli og hreinlæti fór batnandi. Þær kynslóðir sem höfðu háa tíðni ætisára voru ein- mitt fæddar á þessu tímabili. Þetta skýrir aukna og síðan minnkandi tíðni ætisára á þessari öld. Rannsókn á útbreiðslu H. pylori á íslandi sýndi hámarkstíðni mótefna nákvæmlega í þessum sömu fæðingarárgöngum og minni tíðni í fyrri og seinni árgöngum (23). Líklegt er að sýking með H. pylori, sem náði hámarki á þessu tímabili, skýri faraldsfræði ætisára á 20. öldinni. Þegar hreinlæti var hvað minnst og þrengsli hvað mest hafa fleiri böm á íslandi verið útsett fyrir H. pylori og í meira magni en á öðrum tímabilum íslandssögunnar. I samantekt sýnir þessi rannsókn að íslend- ingar fæddir á fyrstu áratugum aldarinnar höfðu háa tíðni ætisára alla ævi og birtist það í hárri tíðni ætisára um miðbik aldarinnar og síð-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.