Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1999, Qupperneq 38

Læknablaðið - 15.07.1999, Qupperneq 38
626 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 kvartar um sársauka og fyrirferð á andlits- og hálssvæði, sérstaklega ef saga er um skamm- vinn blóðþurrðareinkenni frá heila. Það sem aðallega flnnst við skoðun er aum „púlserandi" fyrirferð þaðan sem heyra má hvin (bruit) við hlustun, ásamt einkennum frá aðlægum líffærum og líffærakerfum. Rannsóknir á fyrirferðum á háls- og höfuð- svæði eru helstar á myndgreiningarsviðinu og eru tölvusneiðmyndir og segulómun besti kost- urinn. Erfitt getur verið að mismunagreina milli fyrirferða er hlaða ríkulega skuggaefni, æðaflækjufyrirferða og æðagúla, en kölkun í skuggaefnisríkri fyrirferð ætti að vekja grun um æðagúl. Helstu ábendingar fyrir æða- myndatöku á hálsslagæðum eru ef grunur leik- ur á að um æðaflækju eða æðagúl sé að ræða þá sérstaklega til að staðsetja fyrirferðina og ákvarða blóðflæði og frá hvaða æð það kemur (3). Með þannig myndgreiningu má komast hjá óþarfa sýnatöku sem leitt getur til alvarlegra blæðinga, um leið og rannsóknin býður upp á meðferðarmöguleika þar sem nærandi æð gúls- ins er stífluð með viðeigandi járngormum. Þró- unin á þessu sviði hefur verið hröð og afger- andi forskoti hefur verið náð í samanburði við fyrri meðferðarúrræði sem fólust í skurðað- gerð. HEIMILDIR 1. Lane RJ, Weisman RA. Carotid artery aneurysms; an otola- ryngologic perspective. Laryngoscope 1980: XC: 897-911. 2. Margolis MT, Stein RL, Newton TH. Extracranial aneu- risma of the intemal carotid artery. Neuroradiology 1972; 4: 78-89. 3. Coyas A, Tzagarakis M, Giorigis G, Katsiotis P. The impor- tance of angiography in tumors of the head and neck. J Laryngol Otol 1980; 94: 449-55. Doktorsvörn í læknadeild Þann 28. maí síðastliðinn varði Magnús Gottfreðsson doktorsritgerð sína við læknadeild Háskóla Islands. Heiti ritgerðarinnar er „Pharmacodynamics of antibiotics in vitro with special reference to the postantibiotic effect“. Stutt ágrip ritgerðarinnar fer hér á eftir. Enda þótt sýklalyf hafi verið í almennri notkun í rúma hálfa öld, er margt ennþá á huldu um verkunar- hátt þeirra. Fljótlega eftir að penicillín var uppgötvað tóku menn eftir því að bakteríur sem höfðu verið útsettar fyrir sýkla- lyfinu voru ófærar um að skipta sér í alllangan tíma, jafnvel eftir að lyfið hafði verið fjarlægt eða gert óvirkt. Þessi tímabundna vaxtarhöml- un er nú kölluð eftirverkun sýklalyfja (post- antibiotic effect). Talið er að eftirverkun hafi klíníska þýðingu við skömmtun sýklalyfja, því ef hliðsjón sé höfð af henni megi bæta árangur sýklalyfjameðferðar og draga úr aukaverkun- um. Ástæður eftirverkunar eru óþekktar og aðferðir sem notaðar hafa verið til að mæla hana eru tíma- og mannaflafrekar. Ritgerð Magnúsar er í tveimur hlut- um. Sá fyrri fjallar um mögulegar ástæður eftirverk- unar nokkurra lyfja. DNA myndun baktería var rannsökuð á meðan á eftir- verkun stóð og bakteríumar einnig skoðaðar í rafeinda- smásjá og með frumuflæði- sjá. Þá var leitast við að mæla innanfrumuþéttni sýklalyfj- anna á eftirverkunartíma. Niðurstöður benda til að orsakir þessarar tímabundnu vaxtar- hömlunar séu mismunandi eftir því hvaða sýkl- ar og sýklalyf eiga í hlut. I seinni hluta ritgerð- arinnar er lýst þróun tveggja aðferða til að mæla eftirverkun á einfaldari og fljótlegri hátt en tíðkast hefur til þessa. Niðurstöður þessara rannsókna hafa verið birtar í sex vísindagrein- um í bandarískum og evrópskum fræðitíma- ritum á sviði lyfjafræði og smitsjúkdóma.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.