Læknablaðið - 15.07.1999, Síða 42
630
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Umræða og fréttir
Sautjándi fundur norrænu læknablaðanna haldinn á Islandi
Gagnagrunnurinn og aðsteðjandi
samkeppni aðalmálin
Norramu gestirnir fylgdust af atliygli með fyrirlestrum um gagna-
grunn á heilbrigðissviði.
Ritstjórnir og starfsmenn
norrænu læknablaðanna
hafa þann sið að hittast til
skrafs og ráðagerða á
tveggja ára fresti til skiptis í
löndunum fimm. I ár var
komin röðin að Læknablað-
inu að halda slíkan fund og
fór hann fram í byrjun júní.
Er skemmst frá því að segja
að fundurinn, sem er sá
sautjándi í röðinni, tókst hið
besta og allir fóru heim
ánægðir með árangurinn.
Á þessum fundum er van-
inn að gestgjafarnir ráði dag-
skránni og leggi til eitthvert
umræðuefni sem snertir þá
sérstaklega. Að mati ritstjórn-
ar Læknablaðsins kom vart
annað til greina en gagna-
grunnsmálið og fékk hún þrjá
lækna til að hafa framsögu urn
það, þá Gísla Einarsson, Har-
ald Briem og Einar Oddsson.
Miklar umræður urðu í fram-
haldi af málflutningi þeirra og
kom hinum norrænu gestum
ýmislegt á óvart í allri með-
ferð gagnagrunnslaganna. Ekki
síst fannst þeim einkennilegt
að Alþingi íslendinga skuli
vera búið að setja lög sem
heimila gerð gagnagrunns á
heilbrigðissviði án þess að
ljóst sé hvaða upplýsingar eigi
að setja í hann, hver ráði því í
raun hvaða upplýsingar fara
þangað inn, hver sé hin raun-
verulega viðskiptahugmynd
að baki grunninum og hvernig
haga skuli eftirliti með starf-
rækslu hans.
Dagens Medicin
Auk gagnagrunnsins ræddu
fundarmenn stöðu læknablað-
anna á Norðurlöndum en þar
eins og á fleiri sviðum mann-
lífsins eiga sér stað miklar
breytingar og gerjun. I Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi hafa á undanförnum
fimm árum komið fram á
sjónarsviðið ný blöð sem
nefnast Dagens Medicin og
hafa valið sér starfsfólk heil-
brigðiskerfisins sem viðfang
og markhóp.
Þessi blöð eru að hluta í
eigu sænska útgáfufyrirtækis-
ins Bonniers en afganginn
eiga fyrirtæki í hverju landi.
Þau eiga það sameiginlegt að
keppa af fullri hörku á auglýs-
ingamarkaði og hafa valið sér
læknablöðin sem helstu
keppinauta. Misjafnt er eftir
löndum hversu vel þeim verð-
ur ágengt en til dæmis í Dan-
mörku hefur málgagn lækna-
samtakanna, Ugeskrift for
læger, fundið fyrir talsverðum
samdrætti í auglýsingum eftir
að Dagens Medicin hóf göngu
sína. I Danmörku hafði Uge-
skrift for læger einkarétt á
birtingu stöðuauglýsinga þar
sem auglýst var eftir læknum
en útgefendur Dagens Medi-
cin kærðu það einkaleyfi fyrir
samkeppnisyfirvöldum og
höfðu betur.