Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1999, Page 54

Læknablaðið - 15.07.1999, Page 54
638 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Sjúkrahús Reykjavíkur Rannsóknarstofan fjárhags- lega sjálfstæð um áramót Því má bæta við þetta spjall við Þorvald Veigar að svipaðir hlutir eru að gerast á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, hvort sem það tengist því að sami forstjórinn er yfir báðum stofnunum eða ekki. Að sögn Jóhannesar M. Gunnarssonar lækningaforstjóra SHR er unnið að undirbúningi þess að gera rekstur rannsókn- arstofu sjúkrahússins sjálfstæðan og er stefnt að því að svo verði frá og með næstu áramótum. „Þetta er krafa umhverfisins til ríkisstofnana sem starfa á markaði," segir Jóhannes og bætir því við að hjá SHR séu menn að því leyti betur settir en hjá Landspítalanum að þar þurfi ekki að byrja á að sameina margar rannsóknarstofur. Varðandi hitt atriðið þá get- ur margt verið sameiginlegt þótt faglegt innihald starfsem- innar sé ólíkt. Þar má nefna tölvu- og rekstrarmál, söfnun, móttöku, geymslu og dreif- ingu á sýnum, auk þess sem mörg tæki nýtast til ólíkra verkefna. Tæknin hefur raunar verið að færa þessar rann- sóknir nær hver annarri en áð- ur var. Víðast hvar í öðrum löndum, ekki síst í Bandaríkj- unum, er það algengt að allar rannsóknarstofur séu reknar sameiginlega og þær verða sterkari með því móti.“ - Annað áhyggjuefni hefur verið nefnt en það er hvað verður um grunnrannsóknir og kennslu sem rannsóknar- stofurnar hafa sinnt í veruleg- um mæli. Er ekki hætta á að þetta verði útundan þegar reksturinn byggist á pöntuð- um rannsóknum sem unnar eru eftir gjaldskrá? „Um þetta hefur verið fjall- að og nefndar tvær leiðir til þess að ná utan um þessi verk- efni. Annars vegar er sú leið að hafa gjöld fyrir þjónustu- rannsóknir það há að þau geti staðið undir vísindarannsókn- um. Hin leiðin er sú að Land- spítalinn og Háskóli íslands leggi fram ákveðnar fjárveit- ingar til þess að standa undir rannsóknarstarfsemi sem yrði þá aðskilin frá annarri starf- semi stofnunarinnar. Engin af- staða hefur enn verið tekin til þess hvor leiðin verður farin en mér þykir sennilegt að sú síðari verði notuð sem megin- regla þótt líklegt sé að hluta af hagnaði verði veitt aftur til stofnunarinnar til þróunar og vísindastarfa. Ef vel gengur að ná fram aukinni hag- kvæmni væri hægt að nota það fé sem sparast til þess að stunda vísindarannsóknir. En það er okkur ofarlega í huga að þeirri starfsemi verði hald- ið áfram.“ Staða starfsfólks óbreytt - Menn hafa líka áhyggjur af því að þetta sé bara fyrsta skrefið inn á braut einkavæð- ingar, næst verði rannsóknirn- ar boðnar út og í framhaldi af því fari þær út af spítalanum. Er þetta raunhæf framtíðar- sýn? „Nei, þótt við viljum auka sjálfstæði rannsóknarstofanna og gera þeim fært að standa á eigin fótum og axla ábyrgð á rekstrinum þá væri það mjög slæmt fyrir spítalann ef öll sú þekking sem er á rannsóknar- stofunum flyttist í burtu. Að því viljum við ekki stuðla. Spítalinn nýtur á margvísleg- an hátt góðs af þeirri þekkingu og ráðgjöf frá rannsóknar- læknum. Ef það gerðist væri spítalinn kominn í þá stöðu að kaupa þjónustu og þekkingu úti í bæ en þyrfti samt sem áð- ur að koma sér upp sams kon- ar þekkingu innanhúss. Það væri mjög slæm þróun. Það má ekki slíta þessa starfsemi frá spítalanum." - Hefur þessi breyting ein- hver áhrif á stöðu og kjör starfs- fólks rannsóknarstofanna? „Nei, starfsfólk verður áfram ríkisstarfsmenn og samningagerð og annað sem snertir kjör þeirra verður með óbreyttu sniði. Á hinn bóginn er ákveðið svigrúm í kjara- samningum til þess að hnika til launum og fleiri kjaraat- riðum. Ef tilraunin tekst vel má búast við að þetta svigrúm verði nýtt innan þess ramma sem ríkið setur.“ -ÞH

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.