Læknablaðið - 15.07.1999, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
641
Ársskýrsla Öldungadeildar Lí
Aðalfundur Öldunga-
deildar LI var haldinn laug-
ardaginn 8. maí 1999. Öld-
ungadeild var stofnuð 7. maí
1994 og varð því fimm ára
daginn fyrir aðalfund.
I stjórn starfsárið 1998-
1999 voru: Sigmundur Magn-
ússon formaður, Hörður Þor-
leifsson ritari, Geir Þorsteins-
son gjaldkeri og meðstjórn-
endur Jón Þorsteinsson og
Eiríkur Bjarnason. Öldunga-
ráð skipuðu Arni Bjömsson,
Bergþóra Sigurðardóttir,
Bjami Rafnar, Gunnar Bier-
ing, Hannes Finnbogason og
Tryggvi Þorsteinsson.
í 2. gr. laga Öldungadeildar
segir: „Tilgangur félagsins er
að gæta hagsmuna aldraðra
lækna og stuðla að auknum
samskiptum meðal þeirra, svo
og að efla samskipti lækna al-
mennt, félagslega og faglega.“
Starfsemi félagsins ber að
sjálfsögðu merki þessa til-
gangs.
A síðasta aðalfundi flutti
Friðrik Sophusson fyrrverandi
fjármálaráðherra erindi um
sveigjanlegan eftirlaunaaldur.
Mál þetta hefur verið rætt af
og til undanfarin ár og líklegt
að LÍ hafi hug á að fjalla um
málið. Því er eðlilegt að Öld-
ungadeild eigi þar frumkvæði.
Kjaranefnd
Kjaranefnd var fyrst skipuð
á síðasta starfsári og er því rétt
að hefja störf. Ef að líkum læt-
ur mun hún fjalla um eitt af
megin verkefnum félagsins,
kjaramál en líklega verður
hún einnig vettvangur fyrir
frekari umræður um sveigjan-
legan eftirlaunaaldur. Nefndin
er sammála um að eftirlaun
séu of lág og að stefna beri að
hærri prósentu þeirra launa
sem menn hefðu síðast tekið.
Óánægja hefur komið fram
vegna breytinga á útreikningi
lífeyrisgreiðslna úr Lífeyris-
sjóði lækna sem gerðar voru í
október 1995 en þá voru líf-
eyrisgreiðslur teknar úr sam-
bandi við raunveruleg laun.
Þess í stað skyldi miða við
grundvallarlaun í október
1995, þá kr. 164.742, sem taki
sömu hlutfallsbreytingu og
vísitala neysluverðs. Þá hefur
því einnig verið haldið fram
að ekki megi breyta grund-
vallarlaununum. Vel má vera
að það viðhorf byggi á 7. gr.
reglugerðar Lífeyrissjóðs
lækna en þar segir: „Sjóðs-
stjórn má ekki auka réttindi
meira en tryggingafræðingur
hefur gert tillögur um.“ I Lög-
um um skyldutryggingu og
starfsemi lífeyrissjóða nr.
129/1997 og reglugerð fann
nefndin hins vegar hvergi
ákvæði er segir að viðmiðun-
inni megi ekki breyta. Öld-
ungadeild hefur nú fulltrúa í
Kjaramálanefnd LI.
Læknatal
Nýlega kom Sigurbjörn
Sveinsson að máli við formann
og falaðist eftir tveimur til
þremur mönnum til prófarka-
lesturs á Læknatali. Með því
væri fremur verið að leita eftir
að rétt væri farið með ýmisleg
„professional“ efni en leit að
ritvillum. Þetta yrði raunhæft
frá og með miðjum júní. Lýst
er eftir sjálfboðaliðum.
Nýliðun í Öldungadeild
Til þess að kynna félagið og
ná inn fleiri félögum mun
skrifstofa LI senda upplýsing-
ar um tilveru Öldungadeildar
ásamt bréfi um tilgang félags-
ins til Jíeirra sem verða sex-
tugir. I því augnamiði var
fundarboð síðasta aðalfundar
einnig sent þeim sem þegar
eru orðnir sextugir en eru ekki
félagar.
Sumarbústaður og
snjóflóðahús í Súðavík
Guðmundi Björnssyni for-
manni LI og formanni sumar-
bústaðanefndar, Árna B. Stef-
ánssyni, var bent á ódýr „snjó-
flóðahús“ í Súðavík sem sum-
arbústað. Árni Björnsson var
þarna nýlega í húsi sem FIH
(Félag íslenskra hljómlistar-
manna) hafði keypt og þótti
honum þetta ekki óálitlegur
kostur. Undirtektir hafa verið
dræmar en okkur grunar að
málið hafi í raun aldrei verið
almennilega kannað.
Fræðslu- og
skemmtistarfsemi
Farið var til Reykjalundar
14. nóvember þar sem Haukur
Þórðarson yfirlæknir flutti
fróðlegt erindi um sögu
S.Í.B.S. og Reykjalundar. Til
Hrafnistu í Hafnarfirði 16.
janúar 1999. Guðmundur
Hallvarðsson þingmaður og
stjórnarformaður Hrafnistu
sagði sögu Hrafnistu og Birgir
Guðjónsson yfirlæknir sagði
frá þjónustunni sem þarna er
rekin. Að síðustu var farið til
H.N.L.F.Í. í Hveragerði 13.