Læknablaðið - 15.07.1999, Page 76
658
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Hallgerður Gísladóttir sagnfræðingur
Þó að eðli þyki svíns
- Um alþýðulækningar með hákarli
Hákarl þykir mörgum mesta lostœti, einkum ef réttu veigarnar eru
bornar fram með lionum. En ekki er hann allra. Það er liins vegar
engin nýjung að hanit sé notaður til lœkninga.
Gömul læknisráð á Þjóðminjasafni
Eitt af því sem hefur staðið
til boða á sívaxandi markaði
óhefðbundinna lækningameð-
ala eru hákarlaafurðir. Há-
karlalýsi, hákarlabrjósk og
núna síðast hákarlakrem eiga
að vera græðandi og læknandi
á ýmsa vegu. Einkum hefur
borið á að lýsi og brjósk sé
markaðssett út á meinta virkni
til að fyrirbyggja krabbamein
eða draga úr því. Þær sögur
hafa gengið að hákarlar fái
hvorki krabbamein né sýking-
ar og því séu hákarlaafurðir
sérlega góðar gegn slíku. A
móti hefur verið bent á að að
vísu fái hákarlar sjaldan áður-
nefnda kvilla en það sé þó
þekkt og einnig að þessar
skepnur lifi gjarnan á meng-
uðum svæðum, séu feitar, og í
fitu þeirra setjist að mengun á
borð við PCB efni.
En notkun á hákarli til
lækninga er ekki ný og margir
kannast við hversu vel kæstur
hákarl fer í auman maga - sér-
staklega þegar um er að ræða
ójafnvægi á magasýrum. Há-
karl við magapínum er hreint
ekki ný uppfinning. Að nota
kæstan hákarl sem meðal við
magasári er þekkt frá fyrri
öldum og ekki örgrannt um að
hann sé enn notaður í þessu
skyni. Sú sem þetta ritar
heyrði snemma um þessar eig-
indir hákarlsins og þekkir fólk
sem notar hann við meltingar-
vandkvæðum. Heimildar-
menn þjóðháttadeildar, fæddir
í byrjun þessarar aldar kann-
ast margir við notkun á há-
karli og hákarlalýsi við maga-
bólgum, magasári og ristil-
bólgum. Hákarlahold verður
svo alkalískt að örverur eiga
þar erfitt uppdráttar fljótlega
eftir að skepnan er deydd.
Þetta mun vera skýringin á því
að hægt er að leggja hákarl í
jörð án þess að paddan clost-
rudium botulinum eitri hann.
Ymsar aðferðir voru hafðar
við hákarlskæsingu í gamla
daga og ein var sú að kasa
hákarlsbeitur í mold og hengja
þær síðan upp í hjall með
moldinni utan á. Fiskiflugan
víaði í moldina og hún hrundi
síðan utan af með víunum eft-
ir því sem hákarlinn þornaði
og var þar með maðkavöm.
Matvælafræðingar blána í
framan þegar þeir heyra um
þessa verkunaraðferð en eng-
um sögum fer af því að mönn-
um hafi orðið illt af þessu og
mun sýrustigið vera skýringin
á því að maturinn skemmdist
ekki við þessar aðstæður. Það
kann líka að skýra það hversu
„vistvænn“ hákarl er í súrum
mögum. Eitthvað svipað á við
um skötu og mörgum finnst
blessuð Þorláksmessuskatan
gott magafóður og forvöm á
undan aðsteðjandi veislum.
Enn brýnni hefur sú forvörn
verið fyrir jólaátið í eldri tíð
þegar matur var af skornum
skammti hversdags. Eða hvað
sagði ekki kerlingin í den þeg-