Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Síða 4

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Síða 4
4 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 Læknafélag Islands 75 ára Læknafélag íslands minntist 75 ára afmælis síns síðastliðið ár með margvíslegum hætti. Haldin var vegleg afmælishátíð í upphafi árs og um haustið var skipulögð dagskrá í heila viku þar sem fræði- mennskan sat í fyrirrúmi en menningarlegt ívaf gleymdist þó ekki. Læknaþing, með frjálsum er- indaflutningi og umræðufundum, stóð í fjóra daga, vísindaþing stóð í einn dag og hátíðardag- skrá var skipulögð annars vegar í Nesstofu og hins vegar í Borgarleikhúsinu. I þess Fylgiriti birtast ávörp og erindi sem flutt voru á hátíðardagskránni, bæði í Nesstofu og Borgarleikhúsinu. Frá dagskránni í Nesstofu birtast erindi Tómas- ar Helgasonar og Hauks Þórðarsonar, en fundar- stjóri var Gunnlaugur Snædal. Frá dagskránni í Borgarleikhúsinu birtast ávörp og erindi Helgu Hannesdóttur, Árna Björnssonar, Guðmundar Þorgeirssonar, Kristínar Sigurðardóttur og Tó- masar Guðbjartssonar, fundarstjóri þar var Guð- rún Agnarsdóttir. Sá kostur var valinn að birta einungis ávörp og erindi innlendra gesta þótt ýmsir góðir gestir er- lendis frá hafi heiðrað Læknafélag Islands bæði með nærveru sinni og erindaflutningi. Hér birtast ennfremur erindi sem flutt voru á tveimur umræðufundum sem voru hluti af afmæl- ishaldinu. Annar umræðufundurinn var um út- gáfumál, skipulagður af Læknablaðinu og Nám- skeiðs- og fræðslunefnd læknafélaganna. Þar fluttu erindi Povl Riis, Sverrir Bergmann og Jó- hann Heiðar Jóhannsson, fundarstjóri var Vil- hjálmur Rafnsson. Hinn fjallaði um forgangsröð- unina í heilbrigðiskerfinu, hann var skipulagður af Siðfræðiráði Læknafélags íslands. Þar fluttu erindi Henrik R. Wulff, Einar Oddsson og Örn Bjarnason, fundarstjóri var Tómas Zoega. Allar ljósmyndir teknar af Guðbrandi Erni Arnarsyni.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.