Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 57

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 57 segja: „En læknir. það getur varla verið, að mér þurfi að líða svona illa.“ Menn vænta þess nú, að læknar geti fjarlægt öll einkenni og að hægt sé að leysa tilvistarvanda og aðrar gátur, sem ekki falla innan marka læknisfræðinnar. Greininguna á að gera með nútímatækni og vandann á að leysa með lyfjum. Ef menn misskilja skilgreiningu Heil- brigðisstofnunar þjóðanna á heilbrigði og heim- færa hana gagnrýnilaust á einstaklinga, verður ávallt úrræðabrestur í heilbrigðisþjónustunni (sjá bls. ). Lífsstfll, erfðafræði og umhverfi Nú á tímum þegar allt snýst um lífsstíl og erfða- fræði, eigum við til með að gleyma, að sjúkdómur er fyrst og fremst samspil einstakra lífvera og umhverfis þeirra. Maðurinn er sífellt að breyta umhverfi sínu og þess vegna munu stöðugt koma fram nýir sjúkdómar. Eyðni er að sjálfsögðu ekki síðasta áfallið, sem mannkynið fær í þessum efn- um. Okkur ber að berjast gegn sjúkdómum, en það er sama hver fjáfestingin er: Okkur tekst aldrei að útrýma sjúkdómunum. Við eigum líka í erfiðleikum með að sætta okk- ur við þá staðreynd, að öll eigum við að deyja og það er mikilvægara að eiga gott líf en mjög langt líf. Nútíma læknisfræði er oft svo fyrir að þakka, að við getum sagt um mannveru sem okkur þótti vænt um: Hann eða hún átti gott líf nema síðustu árin. sem voru býsna erfið. Við erum nú orðið betur meðvita þessa en áður, en við verðum að venja okkur af því að líta á hvert andlát, sem tákn um læknisfræðilegan ósigur. I vestrænni menningu felst staðleysuhorf við sjúkdómi, við dauða og við tiltökum læknavísind- anna og þau horf eru meðal þeirra þátta, sem koma í veg fyrir raunsýna umræðu um forgangs- röðun. Að sjálfsögðu væri hægt að ræða miklu fleiri hliðar þessa máls, en tíminn leyfir það ekki. Ég vil aðeins segja, að ég held, að á ýmsum sviðum gætum við, með hagsýni og viðhorfsbreytingum, minnkað misgengi milli þeirra úrræða sem við ráðum yfir og þarfa fólksins fyrir heilbrigðisþjón- ustu, en ég held að það sé of mikil bjartsýni að ®tla, að við komumst nokkru sinni af án forgangs- röðunar. Réttlát útdeiling? Þá er komið að næstu spurningu: Ber okkur að stefna að réttlátri útdeilingu takmarkaðra úr- ræða? Svarið við þessari spurningu liggur á engan hátt > augum uppi. Úrræði eru víða mjög takmörkuð °g í fjölmörgum löndum dettur mönnum ekki í hug að tryggja neitt það, sem minnt gæti á réttlæti. Eigi maður peninga, fær maður góða meðhöndl- un. Ef ekki þá er það bara svona — „just too bad“. Við þekkjum vel aðstæðurnar í Bandaríkj- unum — ríkasta landi heims, þar sem margir fá ekki nauðsynlega hjálp. Það er heldur ekki sjálfgefið á sumum Norður- landanna, að fullt réttlæti eigi að ríkja. Ég hefi á starfsferli mínum kynnst spítalalæknum, sem stjórnuðu deildum með langa biðlista og þeir töldu það afar eðlilegt, að einkasjúklingar þeirra gengju fyrir öðrum. Ég hefi einnig kynnst yfir- læknum, sem létu yngstu læknana á deildinni sjá um göngudeildirnar, meðan þeir stunduðu einka- praksís síðdegis. Meðal fólksins er óskin um réttlæti heldur ekki einráð. í Danmörku hafa risið litlir einkaspítalar og ef til vill verða þeir fleiri. Þeir eru tákn þess, að sumu fólki finnst, að sé buddan í lagi, eigi það rétt á að kaupa betri meðferð en hinir. Ég reyni von bráðar að skilgreina, hvað ég á við með réttlæti, en ég get strax látið þess getið, að réttlæti hefir samheldni að forsendu og hún er alls ekki einróma. En á því gátum við nú heldur ekki átt von. Fyrir því mætti svo færa rök, að við verðum að vera reyndarhyggjusinnar og aðeins leitast við að halda uppi réttlæti að vissu marki! En hér verðum við að gæta okkar. Astandið í Stóra-Bretlandi skýtur mönnum skelk í bringu. Ekki er vafi á, að 1948 heppnaðist að byggja upp virka heilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn, þar sem réttlæti sat í fyrirrúmi. En hvernig fór? Smátt og smátt hefir hlutur einkareksturs auk- ist og ástandið innan hinnar opinberu heilbrigðis- þjónustu hefir stöðugt versnað. Á einn eða annan hátt hafa Bretar lent í vítahring. Ég hefi heyrt þá sennilegu skýringu, að verulega hafi farið að halla undan fæti, þegar þeim sem báru ábyrgðina, og það á fyrst og fremst við um stjórnmálamennina, fannst að þeir væru ekkert upp á þessa þjónustu komnir. Þeir vissu, að yrðu þeir eða þeirra nán- ustu sjúkir, þá áttu þeir víst pláss á einkasjúkra- húsi. Við náum aldrei fullu réttlæti, en ég held að það sé mikilvægt, að þeir, sem stjórna þjóðfélag- inu, stjórnmálamennirnir, forystumenn hags- munafélaga og svo framvegis, séu þess meðvita, að þeir séu háðir hinu opinbera heilbrigðiskerfi. Ella fer illa. Við þurfum því að vera á verði, en við megum heldur ekki vera allt of svartsýn. Ég trúi því, þrátt fyrir allt, að á Norðurlöndunum sé almennt fylgi við þá hugsýn, að sjúkt fólk eigi rétt á meðferð hvað sem líður þykkt veskisins eða þjóðfélags-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.