Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Side 30

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Side 30
30 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 aret. Þau orð ættum við læknar jafnan að hafa í huga. Okkur ber að forðast að vekja óraunhæfar væntingar, en reyna að sjá starf okkar sem ívaf í flóknu mynstri læknisfræðinnar, þar sem læknis- fræðin er ívaf í enn fióknara mynstri þjóðfélags- ins. Það er mannlegt að vilja gefa eigin ívafi sterk- an lit og áberandi stað í mynstrinu, en því aðeins verður það varanlegt, að liturinn sé ekta og stærð- in falli í réttu hlutfalli inní myndflötinn. Staða lækna og læknisfræði, er nú þannig, að tæknilega virðast læknum lítil takmörk sett, og fræðilega geymir læknisfræðin þekkingu á eðli fjölda sjúkdóma og sjúkdómaflokka. Samt eru ýmis stærstu heilbrigðisvandamál mannkynsins enn óleyst, og sér ekki framá að þau verði leyst í bráð. Við vitum til dæmis mikið um eyðni, en samt er lækning ekki í sjónmáli. Þrátt fyrir tækni- byltingu í skurðaðgerðum, tilkomu krabbameins- lyfja og vitneskju um onkógen, eru fleiri krabba- mein ólæknanleg en læknanleg, mannkyninu fjölgar hraðar en möguleikunum til að brauðfæða það, og meðal annars fyrir tilstilli læknavísind- anna lengist meðalaldurinn, án þess að öldrunin verði betri. Betur og betur verður mönnum ljóst, að þessi vandamál verða ekki leyst með aðferðum læknisfræðinnar einum, því þau eru hluti af stjórnmála- og félagslegum aðstæðum, sem lækn- ar almennt hafa skipt sér lítið af til þessa, og þá kemur að stjórnmálalegu stöðunni. Læknastéttin stendur höllum fæti stjórnmálalega af ástæðum, sem ég minntist á hér að framan, en sérlega vegna þess að hún hefur, sem heild, veigrað sér við að taka afstöðu í heilbrigðispólitískum málum. Þegar stjórnmálamenn taka vitlausar ákvarð- anir í heilbrigðismálum, en það gera þeir oftar en ekki, stundum að ráði lækna, láta samtök lækna sjaldan í sér heyra, þögnin er túlkuð sem sam- þykki og ábyrgðinni er velt yfir á læknana til að greiða úr vitleysunni. Stjórnmálamennirnir þvo hendur sínar, og hrósa læknum í sjómannadags- stfl, þegar þeir eru ekki að heimta hærri laun. Hafa læknasamtök heimsins barist fyrir friði í heiminum? Hver hefur verið hlutur lækna í bar- áttu gegn gjöreyðingarvopnum? Hvar standa læknar í umræðunni um mengun andrúmsloftsins og eyðingu ózonlagsins? Hverju svara læknar spurningunni um óhóflega notkun sýklalyfja og óþarfar lækningar? Sofa læknar almennt vært, vegna fjölgunar aldraðra og þeim sívaxandi heil- brigðisvandamálum, sem fylgja öldrun? í hvað rfkum mæli hafa lyfjaframleiðendur og áhalda- smiðir áhrif á starfshætti lækna? Þessum spurn- ingum verður ekki reynt að svara hér, en mér þætti vænt um, ef þær gætu haldið vöku fyrir einhverjum ykkar um sinn. Svo er það framtíðin. Það er ódýrt fyrir gamlan niann að spá, því hann verður aldrei krafinn reikningsskila. Ég held að læknislistin verði, um ófyrirsjáan- lega framtíð, blanda af blekkingu, þekkingu og trú, og uppistaða verði áfram bein samskipti sjúklings og læknis. Ivafið mun breytast, sérgrein- ar munu koma og fara og með þeim tæknibrellur og kennisetningar. Forvarnir munu verða vax- andi þáttur í starfi lækna, en þær verður að byggja á traustum vísindalegum grunni, en ekki kreddu. Læknisfræðin stendur á tímamótum. Með að- gerða- og líffræðitækni verður eflaust hægt að ná enn lengra, á takmörkuðum sviðum. En það mun ekki skipta sköpum fyrir stöðu læknastéttarinnar í heiminum, hvort læknar geta fjarlægt eða lagfært stærri og stærri líffæri gegnum minni og minni göt, eða kafað dýpra og dýpra inní öreindaheim litn- inganna. Hitt mun ráða úrslitum, hvort lækna- stéttin með læknavísindin að vopni, er tilbúin til að taka höndum saman við þau öfl, sem vinna að réttlæti í heiminum, án tillits til þjóðernis, trúar- bragða og landamæra, því stærstu heilbrigðis- vandamál mannkynsins eiga rætur að rekja til þjóðfélagslegra meinsemda. Hafi læknar kjark til að vera þátttakendur í baráttunni við þær mein- semdir, en láti ekki eigingjörn sjónarmið, sem stundum eru kölluð fagleg, stjórna gerðum sín- um, óttast ég ekki um stöðu og hróður læknastétt- arinnar, ella bíður læknis framtíðarinnar hlutverk þjónsins með framrétta hönd, í kerfi, sem byggt er upp og stjórnað af fólki, sem lifir á heilbrigðis- þjónustu, en hefur aldrei séð sjúklinga og veit ekkert um sjúkdóma.. Heimildir 1. Singer M. Reinventing Medical Antropology: Towards A Critical Realignment. Soc Sci Med 1990; 30:179-87 2. Rose G. Reflectons on the changing times. Br Med J 1990; 301: 683-7 3. Spaeth GL. The Nineties: A Critical Decade for Medicine and Mankind. Opthalmic Surg 1990; 21: 6-7 4. Goldwyn RM. Better Care-More Hostility. Am J P1 Rec Surg 1988; 83, 5: 884 5. Livingstone A, et al. The new new general practice: the changing philosophies of primary care. Br Med J 1990; 301: 708-10 6. Matloff JM. The Practice of Medicine in the Year 2010. Ann Thorac Surg 1993; 55:1311-25 7. Carric J. The past, present and future of Medicine. Med J Aust 1991; 155: 731-2 8. Temple NJ. Towards a New System of Health: The Challen- ge of Western Disease. Journal of Community Health 1993; 18: 37-47 9. Arnarson Ö. Illgresi. 10. BjörnssonÁ. Þekkingogblekking. Fréttabréflæknal988;5: 14-5

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.