Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 7

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 7 Tómas Helgason s Agrip af sögu innlendrar læknakennslu Ágrip Skipuleg læknakennsla hófst hér á landi, þegar Bjarna Pálssyni fyrsta landlækni á íslandi varfalið að finna fjóra unga og efnilega menn og kenna þeim læknisfræði, svo að þeir gætu orðið læknar hver í sínum fjórðungi. Pegar landlæknar hættu kennslu 1824 höfðu þeir aðeins útskrifað sex lækna. Jón Hjaltalín landlæknir stofnaði iækna- skóla sinn 1860, en læknaskóli var stofnaður með lögum 1876. Aðstæður til kennslu voru mjög frumstæðar. Kandídötum var gert að stunda framhaldsnám eftir próf í fæðingarstofnun í Kaupmannahöfn og að vinna að minnsta kosti eitt misseri í sjúkrahúsum þar. Háskóli íslands var stofnaður 1911 og varð læknaskólinn hluti hans. Kennarar voru í byrjun tveir prófessorar og átta aukakennarar fyrir 23 stúdenta. Síðan hafa orðið miklar framfarir þó að betur megi ef duga skal. Kennarar eru nú 24 prófessorar og 55 dósentar og lektorar fyrir 361 stúdent. Úr læknadeild hafa útskrifast 1468 kandídatar, þar af 508 á síðustu 12 árum. Inngangur Formleg læknakennsla hefst ekki hér á landi fyrr en Bjarni Pálsson hafði tekið við embætti sem fyrsti landlæknir á íslandi árið 1760. Hann var fyrsti íslendingurinn sem lauk háskólaprófi í læknisfræði (1) án þess þó að ljúka doktorsprófi sem var áskilið til þess að mega stunda lyflækning- ar og hljóta opinber læknisembætti í konungsrík- inu (2). Ýmsir höfðu áður verið kallaðir læknar eða fengist við lækningar. Að örfáum frátöldum, svo sem Hrafni Sveinbjarnarsyni og séra Þorkeli Aingrímssyni í Görðum. höfðu þeir numið listina mann fram af manni. Pað á ef til vill lfka að einhverju leyti við um Hrafn og Þorkel, sem taldir voru af læknaættum. Flestir sem fengust við lækn- ingar voru því ekki háskólalærðir, heldur bart- skerar sem sennilega má segja að hafi verið iðn- lærðir, og aðrir sem kallaðir voru læknar og höfðu aflað sér þekkingar á þeirra tíma læknisdómum. Kennsla Iandlækna 1760-1824 í erindisbréfi Bjarna Pálssonar, dagsettu 19. maí 1760, er honum falið að hafa umsjón með heilbrigðismálum landsins, veita sjúkum læknis- hjálp, og finna og kenna lækningar að minnsta kosti fjórum efnilegum skólapiltum, er síðar yrðu skipaðir læknar í fjórðungum landsins. Fjögur inntökuskilyrði eru talin í bréfinu, þeir skyldu: ,,a) befindes at vœre kommet afœrlige og brave Folk, tegner til noget godt, ere skikkelige, unge og lœrevillige; b) ere begavede med gode Hoveder og har lœst saa meget, at de ere nœsten fœrdige til at demitteres af Skolerne; c) besidder nogle Midler til at anskaffe sig selv de nödvendigste Böger og Instr- umenter. . .; d) eragtes œrlige og bekvemme til at forestaa et Hospital som Forstandere . . . “ (3). Þannig var ekki gerð krafa til stúdentsmenntunar hér frekar en til kírurganáms í Danmörku á þeim tíma. Námsgreinar sem Bjarna var ætlað að kenna voru fimm: Líffærafræði, handlæknisfræði, grasafræði, lyfjafræði og yfirsetufræði (2) . med videre som Nödvendigheden og Landets Om- stændigheder synes at udfordre" (3). Ekki var minnst á lyflæknisfræði, sem var kennd við Háskólann í Kaupmannahöfn. en þar var stúdentspróf inntökuskilyrði. Námstími var enginn tiltekinn í erindisbréfinu, en Bjarni taldi tveggja ára námstíma í stytzta lagi, en fjögur ár líklega hæfilegt (3). Próf átti að fara fram í „Övrighedernes Nær- værelse“, en ekki var nánar tilgreint um fram- kvæmd þess (3). Bjarni tók samtals 13 nemendur, en aðeins fjór- ir luku prófi. Enginn þeirra fór til framhaldsnáms
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.