Kjarninn - 29.08.2013, Page 4

Kjarninn - 29.08.2013, Page 4
Ósigrandi draugur Leiðari Magnús Halldórsson magnush@kjarninn.is F orsendubrestur er það orð sem skipti sköpum í kosningabaráttunni. Með honum er átt við það að verðbólguskotið eftir fall krónunnar í aðdraganda og kjölfar bankahrunsins hafi valdið því að forsendur fyrir verðtryggðum húsnæðislána- samningum séu brostnar. Verðbólgan fór í 18,9 prósent í janúar 2009 en mælist nú 3,8 prósent. Það er víðsfjarri verðbólgu markmiði Seðlabanka Íslands, sem er 2,5 prósent. Verðbólguskotið leiddi til nafnverðshækkunar höfuðstóls verðtryggðra lána. Ríkisstjórnin, undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, ætlar sér að ráðast gegn þessari hækkun á lánum með því að nýta fé sem fæst út úr samningaviðræðum við kröfuhafa í þrotabú erlendu bankanna. Til þessa hefur ríkisstjórnin ekki sýnt á spilin hvað útfærslu varðar, en Sigmundur Davíð sagði í viðtali við Ríkisútvarpið síðastliðinn laugardag að allir þeir sem hefðu „orðið fyrir forsendubrestinum“ myndu fá skuldalækkun, eða leiðréttingu eins og það hefur verið kallað í daglegu tali. Það sem liggur að baki aðgerðinni um skuldalækkun er réttlæti; að þeir sem hafi orðið fyrir barðinu á forsendubrestinum eigi það skilið að skuldir þeirra verði lækkaðar. Vandinn við forsendubrestinn, sem grundvallaður er af því að verðbólga hafi verið hærri en eðlilegt getur talist, er að allir eru undir sem þolendur. Ekki aðeins þeir sem skulda verðtryggt í húsnæði heldur líka leigjendur, og raunar allir aðrir. Verðbólga étur upp kaupmátt allra. Hún rýrir greiðslur til öryrkja, grefur undan rekstri heilbrigðisstofnana, skilur langveika eftir með minna milli handanna en ella og hefur almennt áhrif á hegðun þeirra sem fjárfesta. Sumir halda að sér höndum ef verðbólga er mikil og bíða þess að aðstæður batni, á meðan aðrir ráðast í fjárfestingar með lánum þrátt fyrir mikla verðbólgu. Vandinn við forsendubrestinn, sem grundvallaður er af því að verðbólga hafi verið hærri en eðlilegt getur talist, er að allir eru undir sem þolendur. Spurningin sem blasir við þegar kemur að lækkun allra verðtryggðra skulda er hvort allir sem orðið hafa fyrir áhrifum af mikilli verðbólgu vegna falls krónunnar eigi rétt á allsherjarleiðréttingu á sínum lífskjörum, fyrst stjórnvöld líta svo á að verðbólguskotið feli í sér forsendubrest. Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, orðaði þetta vel í kjarnyrtri stefnuræðu sinni á Alþingi 10. júní. „Það er mikil- vægt að muna að það hafa fleiri upplifað brostnar fjárhags- legar forsendur en skuldarar. Það hafa til dæmis leigjendur, öryrkjar og aldraðir einnig gert í formi hærri gjalda samfara lækkandi kaupmætti. Ég brýni ríkisstjórnina að undanskilja ekki suma hópa umfram aðra í aðgerðum sínum. Forsendubresturinn er víða.“ Þessi orð Óttars eru kjarni vandamálsins sem stjórnvöld standa frammi fyrir þegar kemur að því að grípa til aðgerða á grundvelli forsendubrests sem markast af óvenjulega hárri verðbólgu. Reyndar má deila um hvað telst vera óvenjulega há verðbólga þegar horft er yfir Íslandssöguna. Árið 1991 fór hún hæst í 23,7 prósent. Á þeim tíma voru verðtryggð lán líka áberandi en þó var ekki gripið til almennra skuldalækkana allra þeirra sem voru með verðtryggðar fasteignaskuldir. Ekki verður heldur séð hvernig hægt verður að grípa til almennra skuldalækkana þannig að farið sé fram með jafnræði að leiðarljósi, eins og kveðið er á um í stjórnarskránni og nefnt er sérstaklega í stjórnarsáttmálanum. Fólk er í misjafnri stöðu og misjafnar forsendur eru fyrir henni og flöt lækkun skulda mun alltaf koma fram með misjöfnum hætti. Sumir sem þurfa ekki á neinni hjálp að halda gætu fengið mikla fjárhagslega aðstoð á meðan aðrir sem eiga erfitt með að láta enda ná saman fá ekkert. Enginn efast um nauðsyn þess að grípa til aðgerða gegn þeim mikla skuldavanda sem hrjáir þjóðarbúið í heild, ríki og sveitarfélög og einstaklinga. Samningar við kröfuhafa um erlenda krónueign gætu skilað ríkissjóði miklum ávinningi, jafnvel 200 til 300 milljörðum. Þessir fjármunir munu koma sér vel við að bæta stöðuna. En ríkisstjórnin verður að muna að verðbólgudraugurinn er ósigrandi. Það er aðeins hægt að halda honum í skefjum, ekki drepa hann. Þrátt fyrir gríðarlegt umfang aðgerða þegar kemur að skuldalækkunum fyrir heimili, og ekki fordæmi hvert sem litið er, gætu aðgerðirnar reynst árangurslitlar þegar upp er staðið. Verðbólgu draugurinn gæti farið á kreik á nýjan leik og eyðilagt allt saman. Enn eina ferðina. Laugavegi 71, 101 Reykjavík Sími 551-0708 kjarninn@kjarninn.is www.kjarninn.is Ritstjóri: Þórður Snær Júlíusson Framkvæmdastjórar: Gísli Jóhann Eysteinsson og Hjalti Harðarson Kjarninn miðlar ehf. gefa Kjarnann út.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.