Kjarninn - 29.08.2013, Blaðsíða 67
Með honum í nefndinni eru Unnur Brá Konráðsdóttir,
þingkona Sjálfstæðisflokksins, Ásmundur Einar Daðason
Framsóknarflokki og Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokki.
Vigdís er jafnframt formaður fjárlaganefndar Alþingis og
því mun vinna nefndarinnar hafa bein tengsl við fjárlaga-
vinnuna sjálfa þegar frumvarp Bjarna Benediktssonar,
fjármála- og efnahagsráðherra, kemur til kasta þingsins í
haust. Fjármálaráðherra hefur látið í það skína að mikilla
breytinga sé þörf og hagræðingar sömuleiðis, ekki síst þar
sem hagvaxtarforsendur fyrir árið 2013 og 2014, sem áður var
miðað við, muni líklega ekki ganga eftir. Útgjöld ríkisins á
þessu ári, samkvæmt fjárlögum 2013, eru 573 milljarðar króna
og þar af er fjármagnskostnaður ríflega 88 milljarðar.
Þingflokkur stjórnarandstöðuflokksins Bjartrar
fram tíðar, sem telur sex þingmenn, sendi opið bréf til
hagræðingar nefndarinnar í byrjun vikunnar og hvatti hana
til þess að „hugsa til lengri tíma“ þegar tillögur um hag-
ræðingu væru annars vegar. „Við hvetjum líka til róttækni,“
segir í bréfinu og vitnað er til þess að boðanir að ofan um
flatan niðurskurð allra stofnana séu ekki æskilegar, heldur
þurfi að kafa dýpra til þess að tryggja að hagræðingin verði
varanleg.
Þá eru skuldaniðurfellingar eða skattalækkanir, með
fé sem að öðrum kosti gæti gagnast ríkissjóði til skulda-
lækkunar, sagðar vafasamar.
Fyrirsjáanlegt er að harkalega verði tekist á um almennar
skuldaniðurfellingar á Alþingi í haust. Andstaða var augljós
í Sjálfstæðisflokknum við hugmyndir Framsóknar flokksins
um almenna lækkun á verðtryggðum lánum og töluðu
stjórnarandstöðu flokkarnir, Píratar, Björt framtíð, Vinstri
græn og Samfylkingin, heldur ekki fyrir þessum hug myndum
í aðdraganda kosninga. Útfærsla þessara hugmynda, þegar
þær koma til kasta þingsins, mun því ráða miklu um hvernig
landið liggur þegar kemur að því að ná pólitískri samstöðu
um málið.
02/02 kjarninn stjórnmál
smelltu til að lesa bréf
þingflokks Bjartar
framtíðar
smelltu til að sjá
samanburð á fjárlögum
síðustu ára
smelltu til að kynna
þér þingflokk
Bjartrar framtíðar