Kjarninn - 29.08.2013, Blaðsíða 53
H
inn 10. apríl á þessu ári var tilkynnt að Fríða
Björk Ingvarsdóttir yrði nýr rektor Lista-
háskóla Íslands. Hún er nú tekin við stjórnar-
taumunum í skólanum, en forveri hennar,
Hjálmar H. Ragnarsson, stýrði uppbyggingu
skólans allt frá stofnun með myndarbrag þar til Fríða tók við.
Fríða er listamanneskja fram í fingurgóma og hefur
fjallað um list í fjölmiðlum árum saman, í tæp tíu ár á
Morgunblaðinu og einnig í Ríkisútvarpinu, bæði í útvarpi
og sjónvarpi, auk þess að kenna í Háskóla Íslands samhliða
störfum sínum í fjölmiðlum. Hún segist full tilhlökkunar yfir
komandi verkefnum og segir Listaháskólann vera ein stakan
í orðsins fyllstu merkingu. „Þetta er skóli sem er orðinn
fimmtán ára gamall og það telst ekki langur tími þegar há-
skólar eru annars vegar, í það minnsta í alþjóð legum saman-
burði. Þetta er ungur skóli en samt sem áður með áhugaverða
og mikla sögu að baki. Á skömmum tíma hefur verið byggður
upp sterkur grunnur og það er út af fyrir sig þrekvirki.
Mesti árangur skólans til þessa er að vera orðinn miðstöð
akademískra rannsókna á sviði lista hérlendis og hlutverk
mitt verður að þróa þann þátt frekar,“ segir Fríða.
Ólíkir kraftar
Það sést strax þegar komið er inn fyrir dyrnar í húsakynnum
skólans í Þverholti að þar takast á ólíkir kraftar. Veggirnir
kuldalegir, ber steypa víða, en inni á milli hlýlegir litir á
veggspjöldum og merkiskiltum sem vísa veginn. Húsið er
augljóslega ekki hannað sem skólahús. Ekki er langt síðan til
stóð að breyta því í lúxusíbúðir. Af því varð hins vegar ekki,
sem betur fer. Húsnæðismál skólans hafa lengi verið þrætu-
epli og það er ekki einfalt að átta sig á því hvar kjarninn
í starfsemi skólans væri niðurkominn ef hann hefði ekki
húsnæðið í Þverholtinu. Útsýnið af skrifstofu Fríðu er líka
listrænt í vissum skilningi. Miðborg Reykjavíkur blasir við
þegar horft er út um gluggann, þar sem listamenn úr öllum
áttum glæða mannlífið.
Ólíkir kraftar þeirra fimm deilda sem tilheyra
2/08 kjarninn VIðmæLandI VIkunnar
Viðtal
Magnús Halldórsson
magnush@kjarninn.is
StjÓrn
liStaháSkÓla
ÍSlandS
kolbrún Halldórsdóttir leik-
stjóri, stjórnarformaður
kolbeinn Einarsson
tónlistar maður, varafor-
maður
anna Líndal
myndlistarmaður
Jón Ólafur Ólafsson arkitekt
markús Þór andrésson,
myndlistarmaður og
sýningarstjóri