Kjarninn - 29.08.2013, Page 92

Kjarninn - 29.08.2013, Page 92
áferðin hæfilega skítug og jarðbundin. Handstýrð myndataka í mörgum atriðum, þreytt húsgögn, skítug föt og hófleg lýsing gera heim 2 Guns trúverðugri. Þetta er staður sem er búið í; hann er ekki bara til á kvikmynda setti. Hrottalegt ofbeldið minnir síðan enn frekar á níunda áratuginn. Við sjáum hnéskeljar og hænsnahöfuð skotin í tætlur, slagsmálin eru ekta harðhausa slagsmál og blóðið fær að flæða, ólíkt mörgum Hollywood- hasarmyndum sem hafa verið „hreinsaðar“ til að lækka aldurstakmarkið. Minnir hún að mörgu leyti meira á myndir eins og Midnight Run og Lethal Weapon en nýrri og „hreinlegri“ hasargrínmyndir. Hins vegar er afar fátt á bak við stælana og töffara- skapinn. Handritið er því miður veikasti hluti myndar- innar, þar sem söguþráðurinn er afar fyrirsjáanlegur og persónurnar hver annarri þynnri, sér í lagi eina kven persónan sem skiptir máli fyrir söguna, Deb (Paula Patton), sem er eins týpísk hækja fyrir hetjuna og hægt er að vera. Það er í raun merkilegt hversu vel leikararnir standa sig, þegar það sem þeir hafa til að vinna með er jafn týpískt og handritið hér er. Það kemur til af afar góðu hlutverkavali (Paxton sem illmenni er innblásið val) og traustri leikstjórn sem tekur sig ekki of alvarlega. En það breytir því ekki að upplifunin af myndinni verður mun veikari en ef maður hefði fengið að tengjast persónunum aðeins betur í sögu sem væri ekki jafn beinaber og hér. Allir standa leikararnir sig vel en 2 Guns verður ekki hápunkturinn á ferli neins þeirra. 3/03 kjarninn Exit 2 Guns í tuttuGu orðum Gamaldags, ekta strákamynd með frábærum hasar en slöppu handriti, leidd áfram af skemmtilegum samleik Wahlberg og Washington. Næstbesta Hollywood-mynd Balta.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.