Kjarninn - 12.12.2013, Page 19
60/63 kjarninn TOpp 5
kio Briggs: ljóðrænt réttlæti
Í september 1998 dúkkaði risavaxinn
breskur maður að nafni Kio Alexander
Ayobambele Briggs upp í Leifsstöð. Hann
var að koma frá Benidorm og reyndist
vera með 2.031 e-töflu í farangri sínum.
Kio hélt því fram að íslenskur maður,
Guðmundur Ingi Þóroddsson, hefði komið
fíkniefnunum fyrir í töskunni án hans
vitneskju. Guðmundur Ingi neitaði því en
viðurkenndi í vitnastúku við aðalmeðferð
málsins að hafa hringt í lögreglumann á
Íslandi og greint honum frá upplýsingum
um fíkniefnasmyglið í þeirri von að fá
ívilnun lögreglunnar í öðru máli sem að
honum sneri. Þessi aðferðarfræði Guð-
mundar var reyndar sérkennileg, þar sem
þegar var fallinn dómur í því máli.
Kio var dæmdur í sjö ára fangelsi í
mars 1999. Annmarkar voru hins vegar á
málsmeðferðinni og málið tekið upp aftur.
Á meðan gekk Kio laus en sætti farbanni.
Hann var mjög áberandi á Íslandi á þeim
tíma. Fór í viðtöl, var virkur í skemmtana-
lífinu og tók þátt í kraftakeppnum. Kio var
á endanum sýknaður bæði af héraðsdómi
og hæstarétti og fagnaði þeirri niðurstöðu
gríðarlega. Í kjölfarið fór hann í mál við
íslenska ríkið og krafðist 27 milljóna króna
í skaðabætur fyrir frelsissviptinu. Áður en
málið var dómtekið hafði Kio hins vegar
verið handtekinn á ný, nú í Danmörku,
með um 800 e-töflur í fórum sínum. Hann
tapaði málinu gegn íslenska ríkinu og
ekkert hefur spurst til hans síðan.
#4