Kjarninn - 12.12.2013, Page 32
09/09 kjarninn DÓMSMáL
og koma í veg fyrir stórfelldar úttektir innstæðueigenda
af reikningum sínum. Yfirlýsingin var ekki sett með stoð í
lögum og var ekki birt í Stjórnartíðindum. Því var ekki um
stjórnvaldsfyrirmæli að ræða, heldur viljayfirlýsingu ríkis-
stjórnar sem stóð frammi fyrir fordæmalausum aðstæðum
þar sem allt bankakerfi landsins riðaði að falli og ljóst var að
án róttækra aðgerða myndi skapast hætta á ahlaupi á banka
landsins“.
ekki hægt að beina kröfum að ríkissjóði
Lögmaður ríkisins vísar því einnig á bug að einstaklingar
eða fyrirtæki geti byggt bótakröfu á hendur ríkissjóði á
yfir lýsingu ríkisstjórnarinnar frá 6. október 2008. Í henni
felist ekki að einstaklingar eða fyrirtæki get beint kröfum
að ríkissjóði vegna innstæða sem þeir telji sig eiga heldur að
ríkið muni sjá til þess að innstæðueigendur fari ekki halloka
ef fjármálafyrirtæki verði tekið í slitameðferð.
„Í framkvæmd hefur staða innstæðueigenda, á grundvelli
yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, verið tryggð með því að séð
hefur verið til þess að innstæður í fjármálafyrirtækjum, sem
standa höllum fæti og FME hefur tekið yfir vald hluthafa-
fundar í, hafa verið fluttar til annarra fjármálafyrirtækja
með ákvörðunum FME. Þannig hefur ríkið aldrei greitt út
innstæður, heldur einbeitt sér að því að tryggja stöðu inn-
stæðueigenda með flutningi innstæðnanna,“ segir í greinar-
gerðinni.