Kjarninn - 12.12.2013, Side 34

Kjarninn - 12.12.2013, Side 34
24/29 kjarninn HEiLBRiGðiSMáL í fyrstu grein þessa greinaflokks, sem birtist í Kjarnanum í síðustu viku, var skýrt frá því hvernig sjúkdómsbyrði Íslendinga samanstendur annars vegar af glötuðum æviárum vegna ótímabærs dauða og hins vegar af æviárum lifuðum með örorku, í hlutföllunum 2 á móti 3. Örorka veldur þjóðinni meiri heilsufarsskaða en ótímabær dauði, mælt í „glötuðum góðum æviárum“ að hætti Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Stutta svarið við spurningunni um hvað valdi sjúkdóms- byrðinni er: Við sjálf. Þessi grein er önnur grein af þremur og segir söguna af því hvaða áhættuþættir liggja að baki sjúkdómunum sem leggja okkur að velli fyrir aldur fram eða orsaka örorku. slæmt mataræði stærsti áhættuþátturinn Í raunveruleikanum býr auðvitað margt að baki og eðli máls samkvæmt verða ekki öll dauðsföll eða örorka rakin til ákveðinna áhættuþátta. WHO hefur þó gert tilraun til að rekja sjúkdómsbyrðina til áhættuþátta í skýrslunni „Global Burden of Disease“ frá desember 2012. Samkvæmt henni eru stærstu áhættuþættir heilsubrests hér á landi: matar- æði, ofþyngd, reykingar, háþrýstingur, starfstengd áhætta, hreyfingar leysi, há blóðfita, hár blóðsykur og áfengisneysla – í þessari röð. Slæmt mataræði er sem sagt stærsti einstaki áhættu- þáttur að baki heildarsjúkdómsbyrði Íslendinga, og svo er líka um hin Norðurlandaríkin að Danmörku frátalinni, þar sem reykingar eru í fyrsta sæti, naumlega þó. En rifjum upp helstu sjúkdóma og raskanir, sem gerð voru skil í fyrri grein: Meðan helstu drápararnir eru krabbamein og hjarta- og æðasjúkdómar eru það stoðkerfisraskanir og geðraskanir sem valda mestri örorku, mælt í glötuðum góðum æviárum (e. disability-adjusted life years, DALY). Og heildarfjöldi þessara „glötuðu góðu æviára“? Árið 2010 voru þau 68 þúsund hér á landi, þar af 28 þúsund vegna ótímabærs dauða og 40 þúsund vegna örorku. heilBriGðismál Guðmundur Löve

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.