Kjarninn - 12.12.2013, Page 37
27/29 kjarninn HEiLBRiGðiSMáL
áhættuþættir annað til fimmta sæti: reykingar, háþrýstingur,
ofþyngd og há blóðfita.
Sé hins vegar litið til örorkuvalda breytist myndin tals-
vert: í stað mataræðis er nú ofþyngd stærsti áhættuþátturinn
ásamt starfstengdri áhættu með um 20% hvor, en talsvert
fyrir neðan koma mataræði, reykingar, hár blóðsykur og
eiturlyfjanotkun með um og undir 10% hver áhættuþáttur.
Nú skulum við líta á áhættuþætti að baki einstökum
sjúkdómum og röskunum, og enn er vísað til skýrslu WHO
„Global Burden of Disease“ frá desember 2012.
Eins og áður var getið eru helstu drápararnir krabba-
mein og hjarta- og æðasjúkdómar, en stoðkerfisraskanir og
geðraskanir valda mestri örorku, mælt í „glötuðum góðum
æviárum“. En hvað veldur þessum sjúkdómum? Hverjir eru
helstu áhættuþættirnir?
Örorkuvaldur
Ofþyngd og starfstengd
áhætta eru helstu áhættu-
þættirnir sem valda örorku.