Kjarninn - 12.12.2013, Side 49

Kjarninn - 12.12.2013, Side 49
40/43 kjarninn BÍLaR settu Gonzalo og félagar keflablásara (e. supercharger) við mótorinn. Þunna loftið er ekki einungis bílvélinni erfitt, heldur þurfti Gonzalo markvisst að venja sig á þunna loftið með því að gista í 4.500 metra hæð á sex mánaða tímabili áður en reynt yrði við heimsmetið, alls 30 nætur í fjöllunum. Tæki færið notaði hann til að stilla vél bíls- ins í þunna loftinu. Aðstoðarökumann þurfti Gonzalo að hafa með sér og til starfans valdist æskuvinur hans og landi, Eduardo Canales Moya. Um jólin 2006 var allt til reiðu og á gamlársdag voru þeir félagar komnir upp á háslétt- una, tilbúnir að leggja á fjallið daginn eftir. Að morgni ný- ársdags blöstu við þeim fyrstu vonbrigðin: „Veðrið þarna uppi er eins og hapadrætti, því það eru engar nothæfar veðurspár fyrir þessa hæð. Þegar við mættum á svæðið 1. janúar var allt hvítt, næstum eins metra djúpur snjór í grunnbúðum. Þá urðum við frá að hverfa því þetta er vonlaust nema jörðin sé auð.“ Gonzalo og Eduardo sneru vonsviknir heim en ekki af baki dottnir, staðráðnir í að gera aðra tilraun þegar skilyrði yrðu til þess betri. hugnaðist illa að missa heimsmetið Áðurnefndur Matthias Jeschke hafði nú veður af tilraunum Sílemanna til að svipta hann heimsmetinu. Það hugnaðist honum illa og kallaði hann nú til í snatri gamla ferðafélaga, og gamla sem og nýja styrktaraðila. Áður en langt um leið var hann kominn til Suður-Ameríku á nýjan leik, að þessu sinni með tvo splunkunýja Jeep Wrangler Unlimited Rubicon-

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.