Kjarninn - 12.12.2013, Page 49
40/43 kjarninn BÍLaR
settu Gonzalo og félagar keflablásara (e. supercharger) við
mótorinn.
Þunna loftið er ekki einungis bílvélinni erfitt, heldur
þurfti Gonzalo markvisst að venja sig á þunna loftið með því
að gista í 4.500 metra hæð á sex mánaða tímabili áður en
reynt yrði við heimsmetið, alls
30 nætur í fjöllunum. Tæki færið
notaði hann til að stilla vél bíls-
ins í þunna loftinu.
Aðstoðarökumann þurfti
Gonzalo að hafa með sér og
til starfans valdist æskuvinur
hans og landi, Eduardo Canales
Moya.
Um jólin 2006 var allt til
reiðu og á gamlársdag voru þeir
félagar komnir upp á háslétt-
una, tilbúnir að leggja á fjallið
daginn eftir. Að morgni ný-
ársdags blöstu við þeim fyrstu
vonbrigðin: „Veðrið þarna uppi
er eins og hapadrætti, því það eru engar nothæfar veðurspár
fyrir þessa hæð. Þegar við mættum á svæðið 1. janúar var
allt hvítt, næstum eins metra djúpur snjór í grunnbúðum. Þá
urðum við frá að hverfa því þetta er vonlaust nema jörðin sé
auð.“
Gonzalo og Eduardo sneru vonsviknir heim en ekki af
baki dottnir, staðráðnir í að gera aðra tilraun þegar skilyrði
yrðu til þess betri.
hugnaðist illa að missa heimsmetið
Áðurnefndur Matthias Jeschke hafði nú veður af tilraunum
Sílemanna til að svipta hann heimsmetinu. Það hugnaðist
honum illa og kallaði hann nú til í snatri gamla ferðafélaga,
og gamla sem og nýja styrktaraðila. Áður en langt um leið
var hann kominn til Suður-Ameríku á nýjan leik, að þessu
sinni með tvo splunkunýja Jeep Wrangler Unlimited Rubicon-