Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 55
65/67 kjarninn DaNMÖRK
langur aðdragandi
Sú atburðarás sem endaði með afsögn Mortens Bødskov í
fyrradag hófst í byrjun febrúar í fyrra. Þá hafði verið ákveðið
að dómsmálanefnd danska þingins skyldi fara í Kristjaníu
ásamt nokkrum yfirmönnum úr lögreglunni, hitta íbúa þar
og kynna sér mannlífið og atvinnustarfsemina eins og það
var orðað í tilkynningu danska þingsins. Nokkrum dögum
áður en þingmennirnir ætluðu að heimsækja svæðið ásamt
fylgdarliði var ferðinni hins vegar frestað og sú skýring gefin
að einn af yfirmönnum lögreglunnar kæmist ekki þennan
tiltekna dag.
Meðal þeirra þingmanna sem ætluðu í þessa heimsókn
var Pia Kjærsgaard, sem þá var formaður Danska þjóðar-
flokksins. Hún hóf stjórnmálaferil sinn í Framfaraflokki
Mogens Glistrup 1978 og lét þar mjög að
sér kveða, var kjörin á þing 1984. Hún var
óformlegur leiðtogi flokksins um nokkurra
ára skeið um miðjan níunda áratuginn þegar
flokks formaðurinn Glistrup sat í fangelsi fyrir
skattsvik. 1995 sagði hún sig úr Framfara-
flokknum og stofnaði Danska þjóðarflokkinn
ásamt þremur þingmönnum öðrum, þar á
meðal Kristian Thulesen Dahl, núverandi
flokkfsformanni.
pia ekki örugg í kristjaníu vegna skoðana sinna
Pia Kjærsgaard hefur aldrei legið á skoðunum sínum, en
flokkur hennar hefur mjög ákveðna stefnu í málefnum
innflytjenda og hefur ótal sinnum lýst efasemdum sínum um
tilvist Kristjaníusvæðisins og andstöðu við margt sem þar
fer fram. Þessar skoðanir hennar og viðhorf urðu til þess að
danska leynilögreglan PET taldi sig ekki geta tryggt öryggi
hennar í hinni fyrirhuguðu Kristjaníuferð.
Leynilögreglan vissi að Kjærsgaard ætlaði með í ferðina
og þær upplýsingar hafði PET fengið með því að kíkja í
dagbók Kjærsgaard í gegnum tölvukerfi danska þingsins.
Að hnýsast þannig í einkabækur þingmanna er hins vegar
morten Bødskov
Í nokkrum orðum
Morten Bødskov er 43 ára, með háskólapróf í
stjórnmálafræði og stjórnun. Hefur setið á þingi
fyrir Sósíaldemókrata frá árinu 2001 og verið í
forystusveit flokksins. Hann varð dómsmálaráð-
herra eftir þingkosningarnar 2011.