Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 62

Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 62
72/76 kjarninn ViðTaL minnka umfang ríkisrekstursins mikið, en sértækar lausnir um hvernig það væri mögulegt fylgdu ekki með. Nú hefur þú sagt, Vigdís, að umfang ríkisins sé of mikið á Ís- landi og að stjórnmálamenn verði að hafa kjark og þor til þess að minnka það. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár er nú samt ekki að sjá mikla breytingu í þessa veru þegar heildarmyndin er skoðuð. Skattlagning sem hlutfall af landsframleiðslu er nánast sú sama og hjá síðustu ríkisstjórn. Nú ertu komin í áhrifastöðu til þess að breyta og láta verkin tala. Eru þetta bara orðin tóm hjá þér? „Strax í upphafi hvers ár hefst vinna við fjárlög ársins í fjármálaráðuneytinu. Kosningarnar sem voru í vor komu því inn í vinnu sem þegar var farin af stað. Fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár mun taka mið af þessu. Ég stend alveg við það að ég tel ríkið vera allt of umfangsmikið og stórt og það sé nauðsynlegt að minnka það. Ástæðan er sú að atvinnulífið, hinn almenni vinnumarkaður, stendur undir hinu opinbera en ekki öfugt. Við hrunið kom mikið högg á atvinnulífið og við það veiktust tekjustofnar ríkisins, sem standa undir allri opinberri þjónustu, mjög mikið. Til þessa hefur ekki verið farið í þá nauðsynlegu aðlögun sem þarf að eiga sér stað. Næsta ár er það ár þar sem ríkisstjórnarflokkarnir munu koma að fjárlagavinnunni frá fyrsta degi og þess vegna munu fjárlögin fyrir árið 2015 taka mið af okkar sýn á ríkis- fjármálin miklu frekar en fjárlögin fyrir næsta ár. Aðalatriðið er í mínum huga að grípa til aðgerða sem fjölga störfum. Framsóknarflokkurinn hefur alltaf verið stjórnmálaflokkur atvinnulífsins og það er mikilvægt að við náum að standa undir þeirri ábyrgð, að styðja við atvinnulífið.“ á krossgötum Óhætt er að segja að áætlun um lækkun verðtryggðra skulda, sem stjórnvöld kynntu í lok nóvembermánaðar, hafi verið stærsta mál stjórnvalda til þessa. Umfang aðgerðanna er mikið, samtals um 150 milljarðar króna ef þátttaka er almenn, en aðgerðirnar eru valkvæðar. Vigdís segist sátt við aðgerðirnar. Margir höfðu bundið vonir við að skuldir yrðu lækkaðar meira
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.