Kjarninn - 12.12.2013, Page 64

Kjarninn - 12.12.2013, Page 64
74/76 kjarninn ViðTaL en boðað hefur verið og margir eru líka sáttir við þær aðgerðir sem boðaðar hafa verið. Finnst þér áætlunin, leiðréttingin, í takt við umræðu framsóknarmanna fyrir kosningar? „Já, ég lít svo á að við allt framsóknarfólk geti verið stolt af þessum aðgerðum sem tilkynnt hefur verið um og engin svik hafa átt sér stað, svo mikið er víst. Þetta markar í mínum huga upp hafið að nýju vaxtarskeiði og mun skipta sköpum fyrir fjárhag margra á næstu árum.“ Nú hefur komið fram að þingmenn, þar á meðal þingflokkur Framsóknarflokksins, fengu enga kynningu á aðgerðunum áður en þær voru kynntar opinberlega. Varstu sátt við þetta og ertu búin að kynna þér inntak þessarar áætl- unar ofan í minnstu smáatriði sjálf eða treystirðu forystu flokksins í þessu máli alfarið? „Ég er afar ánægð með það hvernig unnið var að þessu máli. Þetta er flókið mál og mikilvægt að sérfræðingar hafi fengið að vinna sjálfstætt að málinu og koma fram með lausnir sem eru raunhæfar. Þetta var leiðin sem var valin. Ég treysti formanni flokksins og forsætis- ráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugs- syni, algjörlega í þessu máli sem öðrum og tel hann hafa haldið óaðfinnanlega á þessu máli og kynningu þess. Ég hef sett mig inn í þetta mál og við þing- flokkurinn höfum vitaskuld fengið mjög ítarlega kynningu á öllum þáttum þess, enda „okkar“ mál í vissum skilningi, þó að stjórnarflokkarnir standi báðir heilshugar að baki því.“ megum ekki skapa ranga hvata Ef marka má nýjustu tíðindi af tillögum um niðurskurð í ríkis fjármálum er allt undir, þar á meðal barna- og vaxta- bætur, eins og lesa má um í tillögum fjármála- og efnahags- ráðherra til fjárlaganefndar Alþingis, sem birtar eru í Kjarnanum í dag. Málið er augljóslega umdeilt innan

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.