Kjarninn - 12.12.2013, Page 78

Kjarninn - 12.12.2013, Page 78
álit saman stöndum við – sitt í hvoru lagi Guðmundur Gunnarsson skrifar um aðdraganda Þjóðarsáttar og ástandið í dag Þ að er stundum ágætt að staldra við og líta um öxl og athuga hvort á liðnum árum sé eitthvað sem vert er að rifja upp. Ef litið er yfir stöðuna á vinnumarkaðnum í dag er hún um margt svipuð og þegar verkalýðshreyfingin ákvað að taka höndum saman og þvinga stjórnvöld til þess að taka á efnahagsvandanum. Aðdragandi þjóðarsáttarsamninga árið 1990 var alllangur, þróun sem stóð yfir í áratug. Verðbólgan fór í árslok 1979 upp í um 60%. Níunda áratuginn hækkuðu lágmarkslaun rafiðnaðarmanna um 2.500%. Heildar- kjarasamningar milli ASÍ og VSÍ voru undirritaðir í október 1980. Samið var um liðlega 10% meðalkauphækkun og umtalsverða hækkun lægstu launa. Ríkisstjórnin liðkaði til með félagsmálapökkum. Kostnaðarauki kjara samninganna reyndist langt umfram getu ríkissjóðs og fyrirtækjanna, þannig að gengið var látið síga. Í ársbyrjun 1981 var verð- bólgan aftur komin í um 60%. Gjaldmiðilsbreyting var framkvæmd 1. janúar 1981 með því að klippa tvö núll af krón- unni, en þessi aðgerð var tilraun til þess að auka verðskyn Íslendinga. sundurlyndi og heift Efnahagsmál á Íslandi voru á þessum tíma hagfræðingum OECD iðulega tilefni til margs konar athugasemda. Hag- fræðingarnir bentu á að það einkenndi Ísland hversu mikið sundurlyndi og heift væri meðal stjórnmálaafla, sem væri líklega afleiðing þess hversu greiðan aðgang sérhagsmuna- hópar hefðu að stefnumótun ráðandi stjórnvalda. Þessi staða skóp vanmátt stjórnvalda til þess að móta heildstæða efnahagsstefnu og fylgja henni eftir. Eftir að Viðreisnar- stjórnin fór var áberandi að pólitísk stefnufesta varð minni. Hatrammar deilur milli stjórnmálamanna og -flokka urðu áberandi í keppni um að komast til valda. Klofnings framboð komu fram og tækifærispólitíkin komst í valdastólana, stjórnir lifðu í skamman tíma. Þeir sem harðast gagnrýndu meðan þeir voru í stjórnarandstöðu settust í valdastólana og voru komnir í þá stöðu að þurfa að sanna að gagnrýni þeirra hefði verið á rökum reist. Þetta framkallaði vitanlega örar og miklar stefnubreytingar, sem ollu síðan miklum sveiflum í litlu hagkerfi. Verðbólgan tók heldur betur fjörkipp. Fyrri hluta ársins 1983 var svo komið að verðbólgan stefndi í 134%, reyndar ekki á ársgrundvelli, og þótti flestum Íslendingum að nú væri nóg komið. ný stjórn Stjórnin hrökklaðist frá og fyrsta ráðu- neyti Steingríms Hermannssonar tók við stjórnar taumunum. Í árslok 1983 kom í ljós að framfærsluvísitalan hafði hækkað um 84% og hafði aldrei hækkað jafnmikil á einu ári. Stjórn Steingríms greip til ýmissa aðgerða í efnahagsmálum til að ná tökum á verð bólgunni og það tókst að ná samstöðu um hófsama kjarasamninga, sem varð til þess að verðbólgan fór hratt lækkandi og var í árslok 1984 komin niður í 15%. Í febrúar 1984 var undirritaður nýr kjara- samningur til eins árs sem innifól um 15% launahækkun. Opin berir starfsmenn voru hins vegar ákaflega ósáttir við stöðu sína og eftir tæplega mánaðarlöng og umfangsmikil verkföll undirrituðu þeir nýja kjara samninga í október 1984 með allt að 24% hækkun launa. Spíraláhrifin létu ekki á sér standa og í nóvember undir rituðu ASÍ og VSÍ nýjan kjara- samning með sömu launahækkunum. Laun voru hækkuð að jafnaði um 20% árið 1985. ný vinnubrögð tekin upp Fram að þessum tíma hafði niðurstaða þríliðuútreikninga (nefnt Excel-skjöl í dag) á verðlagsvísitölu gagnvart launa- hækkunum verið nýtt sem helsta forsenda kröfugerðar. Í undirbúningi kjarasamninga í ársbyrjun 1986 voru hins vegar tekin upp ný vinnubrögð; á samningaborðinu voru skýrslur um efnahagslegar forsendur, verðbólgu, hugsanlega gengisþróun og stöðu heimilanna. Fyrir undirritun kjara- samningsins var ríkisstjórnin síðan þvinguð til þess að gefa út fyrirheit um að hún myndi halda genginu stöðugu með því að lækka tekjuskatta og útsvar. Öll verkalýðshreyfingin sætti sig við hófsamar launahækkanir, eða 14%, sem var mjög lág tala litið til verðbólgustigsins. Samningurinn gilti út árið 1986 og náði yfir allan vinnumarkaðinn, þar með talda opinbera starfsmenn. Hann átti að tryggja kaupmátt og var nefndur „Þjóðarsátt“, en síðar „Þjóðarsáttin hin fyrri“. Verðbólga minnkaði um skamma hríð en þensla á vinnu- markaði leiddi til þess að hún tók að aukast aftur. Nýir kjara- samningar voru gerðir í desember 1986 þar sem laun hækkuðu um 10%. Í út reikningum hagfræðinga aðila vinnumarkaðarins lá fyrir að ef ná ætti þeim aukna kaupmætti, sem yfirboðsmenn héldu fram að hefði þurft að sækja, sem var um 40% kauphækkun, hefði það framkallað verulega verðbólgu- aukningu. Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamannasambandsins, setti ofan í við þá sem hæst létu og sagði í viðtali um samningana: „Það hefði verið heljar stökk inn í náttmyrkrið að fara gömlu verðbólguleiðina. Því ekkert fer verr með þá lægst launuðu en verðbólgan.“ Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði: „Það er augljóst, að með þessum samningum væri verið að taka áhættu. Samn- ingar eru alltaf happdrætti, en oftast hefur launafólk haft það á tilfinningunni þegar upp var staðið, að vinningnum hafi ávalt verið stolið.“ Opinberir starfsmenn stóðu hins vegar á vordögum fyrir umfangsmiklum verkfallsaðgerðum og uppsögnum og náðu kjarasamningum þar sem laun hækk- uðu að meðaltali um 20%, eða helmingi meir en félagsmenn ASÍ höfðu fengið. Allmörgum þótti þetta bera svipað yfir- bragð og það sem gerst hafði haustið 1984. Hér var örlaga- valdur flokkspólitísk barátta, sem beindist fyrst og síðast að því að koma höggi á sitjandi ríkisstjórn og um leið raunsæis- stefnu ráðandi aðila innan ASÍ. vígstaðan ekki sterk Árið 1987 kepptust launamenn við að afla sér eins mikilla tekna og frekast var kostur, því skipta átti yfir í staðgreiðslu skatta 1. janúar 1988 og landsmenn greiddu ekki tekjuskatt fyrir árið 1987. Verðbólgan hækkaði í 25% og laun voru hækkuð aukalega um 7%. Það var ekki samflot árið 1988, vígstaða verkalýðsfélaganna á almennum markaði var ekki sterk og atvinnuleysi fór vaxandi. Í apríl 1989 gengu opin- berir starfsmenn frá kjarasamningi með 10% launahækkun. Forysta ASÍ krafðist sömu launahækkunar og undirritaði samning á baráttudegi verkalýðsins 1. maí 1989 um sömu hækkun. Gengið seig enn einu sinni og hringekjan fór af stað með umfangsmiklum hækkunum á verðlagi. Útlitið í efnahagsmálum var æði dökkt í árslok 1989. Verð- bólgan var komin í 25% um áramót 1989/’90. Gengið hafði verið fellt um allt að 30% á árinu 1989, kaupmáttur rýrnaði, atvinnuleysi fór vaxandi, gjaldþrotum fjölgaði og atvinnu- lífið var komið að fótum fram. Sjóðir sem ríkisstjórnin hafði stofnað með miklum erlendum lántökum til þess að aðstoða atvinnulífið voru orðnir tómir. Viðræður vegna endur nýjunar kjarasamninga hófust í nóvember 1989, menn mættu þar til leiks ákveðnir í að reyna til þrautar þá leið sem hafði verið reynd árið 1986. Þjóðarsátt undirrituð Þjóðarsáttarsamningur var undirritaður í febrúar 1990. Gildis tími hans var til 15. september 1991, launahækkanir voru 5% á árinu 1990, en 4,5% árið 1991. Sérstakar launabætur voru greiddar á lægstu laun. Gert var ráð fyrir um 1% kaup- máttarskerðingu árið 1990, en aftur á móti hækkun kaup- máttar árið 1991. Áætlað var að verðbólgan yrði á bilinu 6-7%, sem hljómaði í hugum flestra landsmanna eins og óraunsæ óskhyggja. Fyrstu árin eftir þjóðarsátt ríkti nánast stöðnun í íslensku efnahagslífi. Hagvöxtur var lítill sem enginn á árunum 1990-95, um 0,4% á ári. Á þessum árum lækkaði verðbólgan hins vegar til muna, niður í tæp 1,4%. Næstu árin á eftir hélst hún á bilinu 1,5-2% en þá náði netbólan flugi og þrýstingur á verðlag tók að vaxa á ný og verðbólga óx í 3,4% árið 1999, 5,1% árið 2000 og 6,6% árið 2001. Laun hækkuðu um 2.700% áratuginn 1980-90. Ára- tuginn fram að aldamótum hækkuðu þau um 12% og síðan fyrsta áratug nýrrar aldar hækkuðu þau um 30%. Það er afleiðing þess að fastgengisstefnan var aflögð í byrjun aldarinnar og gengið margoft fellt og við vitum hvernig það endaði allt saman. „Eftir að Viðreisnar- stjórnin fór var áberandi að pólitísk stefnu- festa varð minni. Hatrammar deilur milli stjórnmála- manna og -flokka urðu áberandi í keppni um að komast til valda.“ „Gengið seig enn einu sinni og hring- ekjan fór af stað með umfangs- miklum hækkunum á verðlagi.“ um höFunDinn Guðmundur Gunnarsson er fyrrverandi for- maður Rafiðnaðar- sambands Íslands. 06/06 kjarninn áLiT

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.