Kjarninn - 06.03.2014, Page 17
03/06 stjórnmáL
Framsóknarflokknum. Meiri vilji er til þess að setja málið í
annan farveg en að það er í nú og freista þess að ná víðari
sátt um málið. Skýrt hefur þó komið fram í máli Bjarna
Benedikts sonar, formanns flokksins, bæði á þingflokks-
fundum Sjálfstæðisflokksins og á opinberum vettvangi,
að ekki sé annar möguleiki í stöðunni en að „koma ESB-
umsókninni út af borðinu“ eins og einn viðmælenda Kjarn-
ans orðaði það. Þrátt fyrir að meirihluti þingmanna vilji
draga umsókna til baka, eins og stefnt er að, hafa þingmenn
samt rætt um það með skýrum hætti að mikilvægt sé að ná
sem bestri sátt um niðurstöðuna. Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingkona flokksins, hefur verið sérstaklega ötul við að benda
á mikilvægi þess að leyfa þjóðinni að ráða för í málinu, helst
að kjósa um aðildarsamning að loknu samningsferli en í ljósi
pólitískrar stöðu málsins nú að kjósa um framhald aðildar-
viðræðna. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður flokksins, hefur
einnig talað fyrir þessum sjónarmiðum. Umræður hafa
verið hreinskiptar um þessi mál í flokknum en formaðurinn
hefur lagt áherslu á það að halda málinu í sama farvegi og
þingsályktunar tillagan segir til um.
mótmæli á austurvelli
Áformum ríkisstjórnarinnar
um að draga aðildarumsókn
að Evrópusambandinu til
baka hefur verið mótmælt
kröftuglega.