Kjarninn - 06.03.2014, Page 31
04/05 fótbOLti
4-0 fannst mér. Slagkrafturinn í sóknarleik Hollendinga var
einfald lega of mikill fyrir Ísland, ekki síst þegar íslenska
liðið var að missa boltann á svæðum þar sem Holland gat
sótt af fullum þunga leiftursnöggt. En eins og oft í þjálfaratíð
Ólafs Jóhannessonar átti Ísland góða spilkafla og sýndi að
þegar sjálfstraustið var til staðar bjó heilmikið í liðinu. Þetta
sást á köflum gegn Hollandi. Lokatölur urðu 2-1, en Kristján
Örn Sigurðsson klóraði í bakkann með marki á 89. mínútu.
Nigel de Jong skoraði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Holland
í leiknum og hitt markið gerði Mark van Bommel. Það sást í
þessum leik að Holland
var til alls líklegt á HM
sem var fram undan
í Suður-Afríku ári
síðar, en með sigrinum
tryggði hollenska liðið
sér endanlega sæti í
lokakeppninni. Þar
spilaði það frábærlega
og var hársbreidd
frá því að verða
heimsmeistari en tap-
aði 1-0 fyrir Spánverj-
um eftir framlengdan
leik. Miðjumennirnir
sem skoruðu gegn Ís-
landi komu mikið við sögu í keppninni, ekki síst með hörðum
tæklingum.
spennandi riðill
Ástæðan fyrir þessari upprifjun á leikjunum við Holland er
sú að Ísland dróst í riðil með þessari mögnuðu knattspyrnu-
þjóð í undankeppni EM. Aðrar þjóðir sem eru með Íslandi
í firnasterkum A-riðli eru Tékkland, Tyrkland, Lettland og
Kasakstan. Við feðgar urðum fyrir miklum vonbrigðum
þegar við sáum andstæðinga Íslands, en Heimir Andri, sjö
ára sonur minn, kemur alltaf með mér á Laugardalsvöllinn.
marki fagnað
Fyrirliðinn Aron Einar
Gunnarsson, Gylfi Þór
Sigurðsson og Jóhann Berg
Guðmundsson fagna hér
marki þess síðastnefnda gegn
Sviss.