Kjarninn - 06.03.2014, Side 87

Kjarninn - 06.03.2014, Side 87
04/06 vísindi tekin eru upp. Upplýsingarnar sem þú færð um leikinn fara mjög mikið eftir því hvar nemarnir eru staðsettir. Meira að segja tímasetningar eru ólíkar eftir því hvort þeir eru nær eða fjær; þegar raddir margra manna renna saman í eitt tekur það þig lengri tíma að átta þig á því að eitthvað hafi gerst í leiknum nema þá að allir hrópi og öskri það sama á sama tíma. Samskipti heila og vélar byggjast á svipuðum grundvallar- reglum. Þegar nemarnir hlusta á samanlagða taugavirkni frá mörgum heilafrumum er kannski hægt að greina á milli þess hvort manneskja ætli sér að færa hönd eða fót. Þegar hver nemi hlustar á færri taugafrumur er oft hægt að fá nánari upplýsingar, til dæmis hvernig manneskjan hyggst hreyfa tiltekna fingur. ætti eingöngu að nota þessa tækni sem meðferð við sjúkdómum eða röskunum? hvað með heilbrigt fólk sem vill betri eða næmari skynfæri eða aukna getu? Það er eiginlega ekki til neitt gott svar við þessari spurningu því enn sem komið er fellur tæknin í skugga „vélbúnaðarins“ sem við fengum frá náttúrunnar hendi. Ég held samt að það sé ekki langt í að gervilimir verði betri en útlimir sem gerðir eru úr holdi og blóði. Oscar Pistorious, sem missti báða fætur ungur að aldri, þurfti til dæmis að gangast undir alls konar prófanir til að ganga úr skugga um að gervifætur hans [sem íslenski stoðtækjaframleiðandinn Össur framleiðir, innskot Heiðu Maríu] veittu honum ekki ósanngjarnt forskot á aðra keppendur á Ólympíuleikunum árið 2012. Þetta sýnir hvað við erum komin ótrúlega nálægt þeirri fínu línu sem skilur á milli þess að lagfæra og að umbreyta eða betrumbæta líkama fólks. vakna ekki ýmsar siðferðislegar spurningar þegar vélar skjóta móður náttúru ref fyrir rass? Jú, algjörlega. Ætti manneskja með eðlilega sjón að eiga þess kost að láta græða í sig tæki sem gerði henni kleift að sjá innrautt ljós? Hvað með gervilimi sem þreytast aldrei og eru sterkari en venjulegir útlimir? Ef ég væri til dæmis fastur

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.