Kjarninn - 06.03.2014, Page 87
04/06 vísindi
tekin eru upp. Upplýsingarnar sem þú færð um leikinn fara
mjög mikið eftir því hvar nemarnir eru staðsettir. Meira að
segja tímasetningar eru ólíkar eftir því hvort þeir eru nær
eða fjær; þegar raddir margra manna renna saman í eitt
tekur það þig lengri tíma að átta þig á því að eitthvað hafi
gerst í leiknum nema þá að allir hrópi og öskri það sama á
sama tíma.
Samskipti heila og vélar byggjast á svipuðum grundvallar-
reglum. Þegar nemarnir hlusta á samanlagða taugavirkni frá
mörgum heilafrumum er kannski hægt að greina á milli þess
hvort manneskja ætli sér að færa hönd eða fót. Þegar hver
nemi hlustar á færri taugafrumur er oft hægt að fá nánari
upplýsingar, til dæmis hvernig manneskjan hyggst hreyfa
tiltekna fingur.
ætti eingöngu að nota þessa tækni sem meðferð við
sjúkdómum eða röskunum? hvað með heilbrigt fólk
sem vill betri eða næmari skynfæri eða aukna getu?
Það er eiginlega ekki til neitt gott svar við þessari spurningu
því enn sem komið er fellur tæknin í skugga „vélbúnaðarins“
sem við fengum frá náttúrunnar hendi. Ég held samt að það
sé ekki langt í að gervilimir verði betri en útlimir sem gerðir
eru úr holdi og blóði. Oscar Pistorious, sem missti báða fætur
ungur að aldri, þurfti til dæmis að gangast undir alls konar
prófanir til að ganga úr skugga um að gervifætur hans [sem
íslenski stoðtækjaframleiðandinn Össur framleiðir, innskot
Heiðu Maríu] veittu honum ekki ósanngjarnt forskot á aðra
keppendur á Ólympíuleikunum árið 2012. Þetta sýnir hvað við
erum komin ótrúlega nálægt þeirri fínu línu sem skilur á milli
þess að lagfæra og að umbreyta eða betrumbæta líkama fólks.
vakna ekki ýmsar siðferðislegar spurningar þegar
vélar skjóta móður náttúru ref fyrir rass?
Jú, algjörlega. Ætti manneskja með eðlilega sjón að eiga þess
kost að láta græða í sig tæki sem gerði henni kleift að sjá
innrautt ljós? Hvað með gervilimi sem þreytast aldrei og eru
sterkari en venjulegir útlimir? Ef ég væri til dæmis fastur