Kjarninn - 06.03.2014, Side 94

Kjarninn - 06.03.2014, Side 94
05/05 tónList robert smith Það er eiginlega mjög auðvelt að ímynda sér að Robert Smith, söngvari The Cure, sé að gráta frekar en syngja. Ofan á það grætur hann iðulega um eitthvað sérlega grátlegt svo allt verður enn átakalegra fyrir vikið. Hann heldur illa utan um atkvæðin og skemmir grúfið oft að því er virð- ist viljandi, heggur og dregur til skiptis á fremur ósmekk- legan hátt. Og stundum býr hann til hávaða á innsoginu, sennilega bara til að vera óþolandi. Ég fæ oft á tilfinninguna að hann hljóti að vera sjúklega þurr í munninum. björk Já, hún. Hún hljómar eins og engin önnur söngrödd í veröld- inni og ég veit að ég er að fara út á örlítið hálan ís með að hafa hana hér í upptalningunni. Það er meira að segja ennþá til fólk sem þolir hana alls ekki, en svo eru vitanlega allir hinir sem dýrka hana og dá. Það er ekki gott að segja hvar Sykurmolaútgáfan af Björk hefði lent eftir geðþóttaákvarðanir dómaranna, en ef hún hefði komist áfram í X-Factor hefði hún farið þá leið sem einhvers konar Wild Card. Enda ekkert skrýtið, hún er eins og enginn annar. En hún hefði líka getað dottið út. bubbi Ég gæfi háar fjárhæðir fyrir að geta látið 1980-útgáfuna af Bubba flytja Stál og hníf fyrir 2014-Idol-dómaraútgáfuna af Bubba og fá síðan að hlusta á orðaskiptin eftir á. 2014-Bubbi myndi vitanlega ekki hleypa stráknum áfram því hann hljómar jú eins og vandræðaunglingur í mótþróa sem hefur búið aðeins of lengi með foreldrum sínum erlendis og misst valdið á móðurmálinu. Hann er falskur og hjáróma, rennir sér upp og niður í tóna og hljómar oft frekar sem predikari en söngvari. Og er alltaf með dólg. Þeir báðir reyndar. Gleymið því ekki næst þegar þið horfið á sjónvarpsþátt af þessu tagi að umræddar keppnir eru ekki keppni í söng, þær eru keppni í „svona“ söng. The Cure – Boys Don‘t Cry The Sugarcubes – Birthday Bubbi Morthens – Stál og hnífur Fjölmargir söngvarar og fjölmargar söngkonur komu til álita við gerð þessa pistils og hér er Spotify-listi. Listinn er opinn og býð ég öllum að bæta við hann.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.