Kjarninn - 01.05.2014, Page 5

Kjarninn - 01.05.2014, Page 5
02/04 lEiðari kassann út Á sama tíma hefur verið skipuð enn ein nefndin um afnám gjaldeyrishafta. Í henni sitja þrír menn. Þeir taka við kyndlinum af öðrum hópi sem skipaður var sex mönnum í nóvember 2013 og kynnti niðurstöðu sína fyrir þröngum hópi ráðamanna í byrjun apríl. Þær niðurstöður hafa ekki verið kynntar í samráðsnefnd um afnám hafta. Henni er ekki treyst fyrir þátttöku og því verður engin þverpólitísk sátt um þetta stærsta verkefni íslensks samtíma. Þeir sem hafa fengið að ræða við einhverja úr þessum leynihópum undanfarnar vikur eru þó allir sammála um að þar sé verið að stefna að því að setja þrotabú föllnu bankanna í þrot, leysa eignir þeirra til dótturfélags Seðlabanka Íslands og borga kröfuhöfum út í krónum sem verði bundnar mjög stífum höftum. Þetta verður gert með kassann úti og á blússandi sjálfstraustssterum. Vegna þessa eru stærstu kröfuhafarnir, stórir fjárfestingar- og vogunarsjóðir, að búa sig undir að bregðast við slíkri gjörð með frystingum eigna, lögbönnum og öðrum verkfærum sem þeir telja sig geta beitt ef íslenska ríkið gerir erlendar eignir þeirra upptækar. Hinir, nokkur þúsund minni kröfuhafar, sem margir eru upprunalegir og hafa tapað miklu á viðskiptum sínum við íslenska banka, klóra sér í hausnum yfir því að fá ekki að slíta þrotabúum bankanna og fá skertan hluta eigna sinna til baka. Hin eilífa vöntun á gjaldeyri Að mati Seðlabankans, greiningaraðila og í raun allra sem málið skoða virðist hins vegar ljóst að erfitt verði að afnema höft á næstunni, sérstaklega vegna þess að viðskiptajöfnuður mun ekki duga fyrir afborgunum lána sem íslenskir skulda erlendum. Það þýðir að Ísland aflar ekki nægilega mikils gjaldeyris til að standa við samningsbundnar afborganir lána „Vegna þessa eru stærstu kröfu- hafarnir, stórir fjárfestingar- og vogunarsjóðir, að búa sig undir að bregðast við slíkri gjörð með frystingum eigna.“

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.