Kjarninn - 01.05.2014, Page 6
03/04 lEiðari
næstu árin og hefur því sannarlega enga viðbótargetu til að
skipta krónum í gjaldeyri.
Höftin, ónýt mynt og að mörgu leyti ótrúverðugt fjár-
málakerfi hefur gert það að verkum að mörg af stærstu
þekkingar fyrirtækjum sem orðið hafa til á Íslandi eru að
hugsa sér til hreyfings. Creditinfo ætlar að fara og CCP,
Marel og Össur eru raunverulega að ræða þann möguleika.
fasteignabóla
Þá er fasteignabóla í blússandi uppblæstri. Fasteigna-
verð hækkaði um 11,1 prósent síðastliðið ár. Ástæðan er
sú að uppsöfnuð eftirspurn er gríðarleg eftir margra ára
byggingastopp og fasteignir eru orðnar aðal-
fjárfesting lífeyrissjóða og spákaupmanna,
enda lítið annað eftir að kaupa innan hafta.
Afleiðing þessarar þróunar er sú að líklega
hefur aldrei verið erfiðara en nú fyrir ungt
fólk að fóta sig á fasteignamarkaði.
Þrátt fyrir að fasteignaverð rjúki upp á
ljóshraða er ríkisstjórnin að gefa völdum
hópi fólks sem keypti sér íbúð fyrir hrun 80
milljarða króna í skaðabætur vegna áhrifa
verðbólgu á verðtryggð lán þess. Ef hækk-
un húsnæðisverðs heldur áfram á sama
hraða út þetta kjörtímabil mun íbúð sem
kostaði 30 milljónir króna fyrir ári kosta
um 45 milljónir króna árið 2017. Ef eigandi
hennar hefur orðið fyrir „forsendubresti“ og þar með unnið
í leiðréttingar lottói Sigmundar og Bjarna mun hann geta
fengið allt að fjórar milljónir króna gefins af skattfé ofan á
þær 15 milljónir sem fasteignin hans hefur hækkað í verði
á tímabilinu. Allt í boði skattgreiðenda. Verðbólgan sem
skuldaniðurfellingarnar munu setja í gang éta reyndar nær
örugglega upp eitthvað af raunvirðinu, en vinningshafarnir
verða að minnsta kosti betur settir en sá fjórðungur lands-
manna sem er á leigumarkaði eða sá tæplegi helmingur
fjölskyldna sem skuldar ekkert í húsnæðinu sínu.
„Ef hækkun
húsnæðis verðs
heldur áfram á
sama hraða út þetta
kjörtímabil mun
íbúð sem kostaði
30 milljónir króna
fyrir ári kosta um
45 milljónir króna
árið 2017.“