Kjarninn - 01.05.2014, Side 8
04/04 lEiðari
Verði þetta þróunin, sem er meira en líklegt, verður
nokkuð erfitt fyrir skuldaniðurfellingarpáfana að hreykja sér
af þessari glórulausu aðgerð fyrir næstu kosningar. Þeim er
hins vegar fullkomlega treystandi til að búa til nýja kanínu
til að draga upp úr hattinum á þeim árum sem þeir hafa til
stefnu.
Verkföll og annað tilfallandi
Ofan á allt annað er verið að setja Íslands- og Ólympíumet
í verkfallshótunum. Framhaldsskólakennarar eru búnir
að fara í verkfall og knýja fram verðskuldaðar kjarabætur
sem setja kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins í algjört
uppnám. Á þessu ári einu saman hafa síðan háskólakennar-
ar, grunnskólakennarar, leikskólakennarar, flugvallar-
starfsmenn, flugmenn, flugþjónar og starfsmenn Herjólfs
sett fram kröfur um miklar launahækkanir sem ekki hefur
samist um, farið í verkfall eða hótað verkfallsaðgerðum. Þeir
sem hafa látið vaða hafa fengið á sig bannlög.
Þá er ótalið nokkur hundruð milljarða króna gat í
lífeyrissjóða kerfinu, sem gerir það að verkum að stór
hluti þjóðarinnar mun líklega ekki eyða ævikvöldinu yfir
framfærslu viðmiðum, og sífelld frestun á nauðsynlegri
uppbyggingu á heilbrigðisþjónustu til að taka á móti þrefalt
fleiri ellilífeyrisþegum á næstu áratugum.
Þrátt fyrir þetta allt saman fannst forsætisráðherra tilefni
til þess, í nýlegri ræðu, að fullyrða að „flest bendir til þess
að svartnættinu sé að slota og trú á eigin getu að eflast. Það
er einna helst í innstu myrkviðum netsins og í ræðustól
Alþingis að hagsmunaverðir svartnættisins halda vöku
sinni“.
Til að efla trúna þarf hins vegar að leysa vandamálin.
Af ofangreindri upptalningu er ljóst að það hefur sitjandi
ríkisstjórn ekki gert. Þvert á móti virðist allt í steik. Skiptir
þar engu hvort hindranirnar eru skoðaðar í dagsljósi eða
svartnætti.