Kjarninn - 01.05.2014, Síða 10
02/07 HEilbrigðiSmál
Þ
ó þjónusta flestra heilbrigðisstétta sé niður-
greidd á Íslandi, svo sem endurhæfing og
sjúkraþjálfun, gildir ekki það sama um sálfræði-
þjónustu. Sálfræðingafélag Íslands hefur ítrekað
fundað með heilbrigðisyfirvöldum og bent á
þetta ósamræmi í heilbrigðiskerfinu. Á fundunum með
stjórnvöldum hefur Sálfræðingafélagið lagt fram ógrynni
rannsóknarniðurstaðna máli sínu til stuðnings – að sálfræði-
þjónusta borgi sig, ekki einvörðungu fyrir þá sem hennar
njóta heldur einnig fyrir ríkiskassann. Þeir sem njóti við-
eigandi sálfræðimeðferðar vegna sálræns vanda séu síður
líklegir til að flosna upp úr námi eða vinnu með tilheyrandi
kostnaði og tekjutapi fyrir samfélagið.
nokkur úrræði í boði, alls ekki fyrir alla
En það er ekki svo að engin niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu
sé í boði, en það sem er í boði er oft og tíðum sérhæft og
einungis í boði fyrir fáa.Virk starfsendurhæfingarsjóður, sem
er sjálfseignarstofnun sem var upphaflega stofnuð af Alþýðu-
sambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins árið 2008,
býður upp á starfsendurhæfingu vegna andlegra veikinda.
Meginskilyrði fyrir aðstoð hjá Virk eru tvö. Annars vegar
að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu eða tekið þátt á
vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem
rekja má til veikinda eða slysa. Þá er um að ræða fjarvistir
frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða
líkamlegum toga. Og hins vegar að markmið einstaklings sé
að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka
þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða megi.
Stéttarfélögin greiða ákveðna upphæð á ári fyrir
sálfræði þjónustu úr sjúkrasjóðum, en upphæðin er oftar en
ekki hluti af skilgreindum potti sem nýta má í hvers konar
þjónustu.
Félagsþjónusta sveitarfélaga getur greitt fyrir ákveðin
fjölda sálfræðiviðtala skjólstæðinga sinna sem uppfylla
ákveðin viðmið um vinnslu mála og svo framvegis. Hið
sama gera barnaverndaryfirvöld. Þess ber að geta að leik- og
HEilbrigðiSmál
Ægir Þór Eysteinsson
L @aegireysteins