Kjarninn - 01.05.2014, Page 30
02/03 grEining
Franz Ferdinand var drepinn í Sarajevo hinn 28. júní 1914.
Í kjölfarið hefst sagan óborganlega af Svejk, dátanum
seinheppna. Hann gengur í herdeild Austurrísk-ungverska
keisaradæmisins og hefur síðan göngu sína í gegnum hörm-
ungar fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Á mánudaginn fékk ég stutt skilaboð í símann minn frá
fréttaþjónustu Wall Street Journal, þar sem sagði orðrétt:
Tugþúsundir rússneskra hermanna eru við landamæri
Úkraínu. Raðir skriðdreka sömuleiðis. Spennan magnast.
Í Úkraínu, alveg eins og Sarajevo á sumarmánuðum 1914,
er uppi ógnvænleg staða. Landið er, að því er virðist, að liðast
í sundur innan frá. Þannig var staðan einnig þegar bílaröð
Franz Ferdinands og fylgisveina hans varð fyrir skotárásinni
í heimsókninni til Oskars Potiorek hershöfðingja sem hafði
boðið erkihertoganum að vera viðstaddur hersýningu.
Innanmein, efnahagslegir erfiðleikar, sundurlyndi og sífellt
vaxandi samfélags ólga breytti samfélagsgerðinni í púður-
tunnu sem sprakk.
Getur svipað gerst núna? Geta stríðsátök brotist út
í Austur-Evrópu þar sem Rússar eru helsta ógnin við
nágranna ríkið Úkraínu? Er hættan á þessu ofmetin?
Spurningarnar eru komnar fram
Þessar spurningar eru farnar að sjást víða í fjölmiðlaumræðu
á erlendum vettvangi og ýmsir stjórnmálamenn virðast
telja að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sé hættulegur og
veruleikafirrtur. Angela Merkel sagði það berum orðum
og Carl Bildt sagði að Pútín myndi ekki linna látum fyrr en
hann væri búinn að ná algjörum yfirtökum í Kíev, höfuðborg
Úkraínu.
Enginn getur sagt til um það með vissu hvort stríð getur
brotist út en spor sögunnar hræða. Ólíkt því sem var þegar
morðið á Franz Ferdinand ýtti fyrri heimsstyrjöldinni af stað,
þó að slíkt sé vitaskuld einföldun á flóknari atburðarás, er
sterkt friðarhvetjandi fyrirkomulag fyrir hendi sem birtist í
alþjóðapólítískum stofnunum. Þar eru Sameinuðu þjóðirnar
og Evrópusambandið áberandi, en einnig vettvangur þar
„Frásagnar-
gáfa Haséks
var mögnuð og
afköstin á stutt-
um ferli með
ólíkindum.“