Kjarninn - 01.05.2014, Page 52
byrjað að endurskoða seðlabanka Íslands
Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð til að endur-
skoða lög um Seðlabanka Íslands. Formaður hennar er
Ólöf Nordal, fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins
og formaður bankaráðs Seðlabankans. Aðrir sem sitja
í nefndinni eru hagfræðingarnir Þráinn Eggertsson og
Friðrik Már Baldursson. Í bak herbergjunum er sagt að
nefndin hafi þegar hist einu sinni. Endurskoðun á lög-
unum er síður en svo óumdeild aðgerð. Margir telja að
tilgangur vinnunnar sé að losna við Má Guðmundsson
úr stóli Seðlabankastjóra og koma pólitískt skipuðum
aðilum í hann.
titringur vegna skuldaniðurfellinga
Ótrúleg staða er nú komin upp á þinginu þar sem vel
á annað hundrað þingmál bíða þess að verða afgreidd
á síðustu dögum þingsins. Þar á meðal er það ESB-
málið, skuldaniðurfellingaráform og breytingar á lög-
um um veiðigjöld í sjávarútvegi. Útilokað er að þessi
mál verði rædd ítarlega sökum tímaskorts. Nú heyrist
hávær orðrómur um að mikill titringur sé innan
stjórnar flokkanna, einkum Sjálfstæðisflokks, vegna
skuldaniðurfellingaráforma. Hagtölurnar benda til
þess að aðgerðirnar séu tóm della og Pétur H. Blöndal
og fleiri sætta sig einfaldlega ekki við þetta.
af nEtinu
Samfélagið segir
um ummæli Ólafs Ólafssonar körfubolta-
manns um fermingarstelpur á túr
kjarninn 1. maí 2014
facebook twitter
HelgI seljaN
Var ekki nóg fyrir þennan gæja að fá gefins
banka meðan að hann var landlæknir?
mánudagur 28. apríl 2014
sIgrÚN jÓNsdÓttIr
Hélt með Grindavík fram að þessum
ummælum, hvað er eiginlega í gangi!!!
mánudagur 28. apríl 2014
OlOF eMbla eyjOlFsdOttIr
Eiga ekki íþróttamenn að heita fyrirmyndir?
Fyrir hvern... upprennandi karlrembur?
mánudagur 28. apríl 2014
þOrsteINN FINNbOgasO @goltti
Virkir í Athugasemdum ættu að þakka
Grindavík fyrir þessa veislu sem þeir hafa verið
í undanfarnar vikur..#Grindavíkbeztíheimi
þriðjudagur 29. apríl 2014
erla Ósk ÁsgeIrsdÓtt @erla_osk
Ósmekklegasta fyrirsögn ársins fer til @visir_is
"Við erum eins og litlar fermingarstelpur á túr"
mánudagur 28. apríl 2014
steFÁN HjÁlMtýr @Stefanhjalmtyr
Stay classy #Grindavík #krummaskuð
þriðjudagur 29. april 2014
01/01 Samfélagið SEgir