Kjarninn - 01.05.2014, Síða 54
01/01 SpES
01/01 spes kjarninn 1. maí 2014
SpES Þyngsta kona heims í megrun svo hún komist í kirkju til að giftast elskhuganum
Þarf að missa 127 kíló
fyrst fyrir hjáveituaðgerð
H
in 38 ára gamla Charity
Pierce er þyngsta kona í
heimi, en hún vegur tæp
356 kíló. Charity er nú
komin í megrun, en hún er
harðákveðin í því að ganga að altarinu til
að eiga unnusta sinn, hinn tággranna 22
ára gamla Tony Saur.
Til þess að af giftingunni geti orðið
þarf Charity, sem hefur ekki farið út
úr húsi síðan árið 2001 sökum stærðar
sinnar, að missa 127 kíló svo hún komist
í hjáveituaðgerð. Læknar hafa ítrekað
varað Charity við því að hún verði ekki
langlíf nema hún léttist töluvert.
Tony hefur aðstoðað Charity við að
fækka hitaeiningum úr 10.000 niður í
1.500 á dag. Fyrir megrunina borðaði hún
morgunkorn, tvær pítsur, tvær stórar
samlokur, fimm kleinuhringi, tvo diska
af lasagna, Kit-Kat súkkulaðistykki, stóra
skál af poppi og sætindi á degi hverjum.
Í viðtali við bandaríska fjölmiðla
sagði Tony: „Ég hef aldrei sett þyngd
Charity fyrir mig. Ég veit að hún verður
falleg brúður. Ég hef áhyggjur af því að
hún deyi, en ég ætla að hjálpa henni að
léttast.“