Kjarninn - 01.05.2014, Page 58
02/03 álit
mér finnst að fólk eigi að reyna eftir fremsta megni að eyða
peningum sínum á Íslandi. Annað sem ég hef sterkar skoð-
anir á er mjög ódýr fjöldaframleidd föt sem seld eru í stórum
verslana keðjum – fötunum er hrúgað þar inn og þjónustan er
lítil sem engin. Ég vildi heldur að strákarnir legðu metnað í
að finna sér góðar og vandaðar flíkur sem seldar eru á Íslandi
og um leið eiga góða upplifun við kaupin.
Þessa skoðun mína viðra ég við hvern sem vill heyra hana
og fyrrverandi liðsfélagar mínir í Val og Þrótti fengu líka að
heyra tuðið í mér þegar þeir keyptu sér hrúgurnar af fatnaði á
Spáni. Það má ekki gleyma því að margt smátt gerir eitt stórt
og þessi innkaupastefna er ekkert endilega ódýrari til lengri
tíma litið. Þegar ég ráðlegg fólki í fatakaupum legg ég mikla
áherslu á gæði og notkunarmöguleika. Í þessum tiltekna
verslunarleiðangri heyrði ég nokkrar mjög athyglisverðar
línur frá strákunum:
„Æ, það er ekki til Large svo ég kaupi bara Medium. Hvort
sem er svo ódýrt, skiptir ekki máli.“
„Ég mun örugglega aldrei nota þetta aftur
en skiptir ekki máli, kostar svo lítið.“
„Ég kaupi bara marga svona boli, hlaupa
alltaf í þvotti og verða of litlir.“
Ég tek það fram að þetta er alls ekki
bundið við KR-inga og hef ég heyrt svipaðar
setningar frá liðsfélögum mínum í öðrum
félögum þar sem ég hef leikið. Auðvitað er gaman að versla
erlendis og ég er ekki að biðja fólk um að sleppa því alfarið.
Mín skoðun er þó sú að margir af liðsfélögum mínum væru
ánægðari í dag ef þeir hefðu keypt sér eina fallega vandaða
flík í verslun á Íslandi stað þriggja í ódýru verslununum á
Spáni. Þá hefðu þeir einnig styrkt íslenskan efnahag og um
það snýst þetta allt að mínu mati. Ég versla við þig og þú
verslar við mig, ekki við risakeðjuverslun á Spáni. Styrkjum
íslenska kaupmenn og setjum traust okkar á þá. Rekstrar-
umhverfið á Íslandi er nægilega erfitt fyrir þó að við flykkju-
mst ekki öll til útlanda að versla.
Íslenskum verslunum hefur vaxið ásmegin undanfarin
„Mér finnst að fólk
eigi að reyna eftir
fremsta megni að
eyða peningum
sínum á Íslandi. “