Kjarninn - 01.05.2014, Síða 60

Kjarninn - 01.05.2014, Síða 60
01/05 piStill g nóttstaða í bandaríkjadollara; skortstaða í þýsku marki, frönskum franka og ítalskri líru. Þannig hljóðaði fyrsta fjárfesting fyrsta vogunar sjóðs veraldarsögunnar, sem hóf starfsemi í Bretlandi hinn 1. janúar árið 1920, en fjárfestingin merkti að sjóðurinn græddi ýmist þegar banda- ríkjadollarinn styrktist eða síðarnefndu myntirnar veiktust gagnvart breska pundinu. Þrátt fyrir að sjóðurinn hafi verið stofnaður fyrir hartnær öld síðan er, þegar nánar er að gáð, ótrúlegt hve svipaður hann var mörgum vogunarsjóðum nútímans. Sjóðurinn var ekki opinn almenningi, heldur voru fjárfestarnir fáir og sterkefnaðir og treystu vogunarsjóðsstjóranum vel. Hann nýtti sér lánsfé (þ.e. vogun – sem sjóðirnir sækja nafn sitt til á íslensku) til þess að fjárfesta fyrir stærri upphæðir og ná fram meiri ávöxtun en ella, og vílaði ekki fyrir sér að veðja á verðlækkun á fjármálamörkuðum frekar en verðhækkun. að hugsa eins og vogunarsjóður Hafsteinn Hauksson veltir fyrir sér vogunarsjóðum og aðferðum þeirra til þess að ávaxta fé sitt. piStill Hafsteinn Hauksson hagfræðingur kjarninn 1. maí 2014

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.