Kjarninn - 01.05.2014, Page 65
05/05 piStill
dregið úr högginu ef veruleg lækkun á mörkuðum skyldi
raungerast. Með öðrum orðum eru þeir alltaf með plan B
og C, eins og Reynir Grétarsson, forstjóri CreditInfo, lagði
nýlega áherslu á í viðtali við Kjarnann. Þeir eru jafnframt
nægilega agaðir til þess að fylgja varaplaninu eftir ef á þarf
að halda, í stað þess að vona að allt lagist af sjálfu sér – að
hlutirnir reddist.
...elska það sem þeir gera. Sjóðsstjórarnir hafa allir
mismunandi hugmyndir um það hvað einkenni góðan fjár-
festi – allt frá því að hann þurfi að vera flinkur í stærðfræði
til þess að kunna góð skil á sagnfræði, að vera auðmjúkur,
áhættumeðvitaður, að skilja sálfræði og ákvarðanatöku.
Eitt sammælast þeir þó allir um; að fjárfestir sem hefur
ekki áhuga á neinu öðru en peningum sé fljótur að brenna
upp. Mikilvægastur er áhugi, fróðleiksfýsn og ástríða fyrir
viðfangsefninu – annað skiptir minna máli.
Þótt sjóðsstjórarnir hafi sett þessi prinsipp sín í samhengi
við fjárfestingar ætti að vera ljóst að þau eiga ekki einungis
erindi við fjárfesta eða hagfræðinga, heldur hafa þau miklu
víðari skírskotun, enda eiga þau sér samsvörun í starfshátt-
um fólks sem nýtur velgengni á ólíkum sviðum um víða ver-
öld. Það þarf enginn að ganga í aðdáendaklúbb vogunarsjóða
eftir lestur pistilsins en vonandi geta þó fleiri en bara Keynes
grætt á því að tileinka sér það besta úr hugsunarhætti þeirra
– í það minnsta endrum og eins.