Kjarninn - 01.05.2014, Síða 75

Kjarninn - 01.05.2014, Síða 75
04/04 kjaftæði mikið ströggl. Þrír miðaldra karlar í efstu sætunum, bersýni- leg óeining innan flokksins um stærstu stefnumál. Oddviti sem maður á rosalega bágt með að trúa að gráti og blæði fyr- ir hag Reykvíkinga. Fyrrverandi vonarstjarna flokksins fyllir samfélagsmiðla af leyndum áróðri gegn flokknum. (GMB – Kjósið þann sem elskar RVK.) Er virkilega einhver sem hugsar: „Já, já, þetta er ekkert sem kvikk fundur á auglýs- ingastofu, starfsdagur og fótósjopp lagar ekki.“ Flokkurinn hefur aldrei mælst jafn illa í skoðanakönnunum, eðlilega. Mér finnst hann samt vera með óhugnanlega mikið fylgi miðað við hvað þetta er hrikalegt #struggle. Einn góðan veðurdag hækkum við í græjunum Mikið er ég samt feginn að Guðni Ágústsson fór ekki fram. Ekki af því þetta var Guðni; ég fíla Guðna. En Guðni er 65 ára gamall og 65 ára gamlir menn eiga ekki að ráða neinu nema því hvað þeir fá í kvöldmat. Og síst af öllu eiga þeir að hafa skoðun á hlutum eins og ESB, flugvellinum og krónunni. Þetta bara kemur ekki gömlum körlum við. Einn góðan veðurdag munu allir þessir gömlu valdasjúku kaldastríðskarlar hverfa ofan í rykið og þá getum við hækkað í græjunum og haft gaman. „Þó svo að þeir aðhyllist kapítal- isma er þetta heldur glatað samansafn af kapítalistum. Eins konar áhuga- mannafélag.“

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.