Kjarninn - 15.05.2014, Side 32
22/23 viðskipti
að baki. Ef eitthvað óeðlilegt ætti sér stað væri það augljóst og
trúverðug leikinn hyrfi. Það eru verkferlar sem gilda og hingað
til hefur allt gengið upp sem Baldur sagði í upphafi,“ segir David.
Hann útskýrir tæknilegu hliðina, hvernig 50% af aurora coin hafi
verið „verkuð“ (e. pre-mined) fyrir fram og dreifist til Íslendinga.
Þeir sem vilji geti síðan grafið eftir (e. mine) hinum helmingnum
af heildarstabba aura. David fullyrðir að opið bókhald rafmynt-
arinnar (e. ledger) hafi ekki sýnt fram á neitt óeðlilegt.
Í grein á vefsíðunni Dogeconomist.com var sýnt fram á
hvernig örfáir aðilar sem græfu eftir myntinni hefðu sótt
langstærstan hluta þess sem nú hefur verið sóttur. Er þetta
óeðlilegt? Eru einhverjir sem þekkja til að græða vegna þess að
þeir vita meira en aðrir?
„Ferlið við að grafa eftir rafmyntum hefur breyst mikið frá
því sem áður var. Í fyrstu stóðu menn einir í því að grafa eftir
myntum en eftir því sem fleiri komu að hafa myndast hópar eða
„laugar“ (e. mining pools) þar sem unnið er saman. Í dag eru
svokallaðar snjall-laugar (e. smart pools) algengar. Þær grafa
eftir mörgum rafmyntum og verja tímanum í hverja og eina
eftir verðmæti þeirra hverju sinni og erfiðleika við að sækja
myntina,“ útskýrir David. Hann telur því ekki óeðlilegt að stór
hluti aura hafi runnið til einstakra aðila, því að baki einum
standi margir einstaklingar.
verðið hrundi
Rúmlega 10% Íslendinga hafa sótt sér þá Aura sem þeir eiga rétt
á, í fyrsta skrefi áætlunar Baldurs Friggjars. Þar til aurarnir eru
sóttir eru þeir í höndum Baldurs en þeim á að dreifa í þremur
skrefum. Á fjögurra mánaða fresti geta þeir sem vilja sótt sér
nýjan skammt af aurum, 31,8 AUR í hvert sinn. Að árinu loknu,
í mars 2015, verður eftirstandandi aurum ýmist eytt eða þeir
gefnir til góðgerðarmála, samkvæmt útlistun áætlunarinnar á
auroracoin.org.
Eins og fyrr greinir var verðmæti Auroracoin, sem segja má
að hafi orðið til upp úr engu, gríðarlegt þegar myntinni var fyrst
dreift hinn 25. mars síðastliðinn. Síðan þá hefur það hríðfallið og
er verðmæti hvers skammts, 31,8 AUR, um 1.500 krónur í dag.