Sagnir - 01.04.1980, Side 2
Ritstjórapistill
Það mun hafa verið um jóla-
leytið 1979 sem undirritaðir
tóku að gæla við þá hugmynd að
eignast afkvaemi í blaðaformi.
Félag sagnfræðinema var fengið
til þess að gerast fjárhagslegur
bakhjarl ef afkvæmið yrði um of
heimtufrekt.
Meðgöngutíminn var stuttur en
erfiður. 1 janúar hófst efnisöflun
og ýmis undirbúningsvinna sem stóð
fram yfir páska. Eftir páska tóku
hríðirnar að gera vart við sig.
Þær voru átakamiklar því vegna
fátæktar varð að vélrita allt efni
upp og við urðum sjálfir að setja
blaðið. Afkvæmið er því ekki eins
útlitsfagurt sem skildi, en við
biðjum lesendur að virða viljann
fyrir verkið.
Nú er það í heiminn borið og
það er þitt lesandi góður og
sögunema framtíðarinnar að kveða
á um hvort það eigi skilið að
eignast systkini eður ei.
Við þökkum þeim sem aðstoðuðu
við vinnslu blaðsins, höfundum
fyrir efnið, stúdentaráði fyrir
aðstöðuna, auglýsendum, Offset-
fjölritun Birkis og sérstakar
þakkir fær Þór Whitehead, sem
studdi okkur með ráðum og dáð.
Þá á auglýsingastjórinn, Gústaf
Níelsson,, miklar þakkir skildar.
Eggert Þór Bernharðsson Gunnar Þór Bjarnason
Efnisyfirlit
bls.
SAGNFRÆÐI, AF HVERJU 3
OG TIL HVERS
INIMVIRKI SOGUNNAR 7
SAGA I DONSKUM 9
SKÓLUM
SAGAN SEM PÓLITi'sKT 'VSL
VOPN
FÓLKSFJÖLDASAGA OG 15
SÖGULEG LÝðFRÆOI
STAÐA ÍSLENSKRAR 30
SAGNFRÆÐI
GOOSAGNIR RAOA RIKJUM 38
SMAFLOKKAFRAMBOO Á 4S
ÍSLANDI 1942-1974
SKAPENOUR EN EKKI 53
Þiggjendur
VIGOROIÐ VAR 57
„VERNDUM SOVÉTRÍKIN”
bls.
SAGNFRÆDI - 69
FÉLAGSFRÆOI
GAMLAR
REYKJAVÍKUR MVNDIR 72
SAGNFRÆÐINÁM VIO 74
OSLÓARHÁSKÓLA
Forsíðumyndin, "Goðunum steypt
af stalli", er eftir Auði
ölafsdóttur sagnfræðinema.
Apríl 1990
.LAÍÍDI’ f N
333852