Sagnir - 01.04.1980, Page 14
Marx um þróun mannlegs samfé-
lags og sögu. Hreyfingin hefur
litið svo á, að þráttarhyggja
spámanns sins og afbrigði henn—
ar, "sóguleg efnishyggja" , væru
í senn óskeikular og altækar
kenningar. Þessi reginmunur er
á kerfi marxista og kenningum
vísindanna. Eins og margir
gagnrýnendur Marx hafa bent á,
eiga lögmál hans eða spádómar
því meira skylt við trúarbrögð
en eiginleg vísindi. Það er
engin tilviljun, að frá ríkjum
marxista kemur yfirleitt engin
sagnfræði, sem stendur undir
nafni. Hitt er svo annað mál,
að ”efnishyggju"-skýringar
('eða öllu heldur greiningar á
efnalegum skilyrðum einstakl-
inga og þjóða eru stundum nyt-
samlegar vinnutilgátur, en ekk-
ert umfram það„
Tvö tímabil koma einkum upp
í hygann, þegar spurt er um
sögu og íslensk stjórnmál.
Fyrst er það 19. öldin og fyrri
hluti 20. aldar. Sjálfstæðis-
hreyfingin tók söguna i sína
þjónustu eins og þjóðernissinn-
ar gerðu reyndar um alla álf-
una. Margt í sögutúlkun þessa
tíma er okkur framandi (t.d.
Dananíðið), en óneitanlega
virðist sagan hafa orðið að
bitru vopni í sjálfstæðisbar-
áttunni. Hitt tímabilið, sem
kemur í hugann, eru þrír fyrstu
áratugir lýðveldisins. Þeir,
sem börðust gegn því, að ís-
lendingar tækju þátt í samstarfi
vestrænna þjóða, notuðu óspart
sögulegar samlíkingar í mál-
flutningi sínum. Heimsmynd
sjálfstæðisbaráttunnar var
dregin um samtíðina. Reynt
var að benda á hliðstæður milli
utanríkismála lýðveldisins og
fjörbrota þjóðveldisins. Ráða-
mönnum var líkt við þá einstak-
linga Sturlungaaldar, sem að
hefðbundinni söguskoðun voru
taldir níðingar og landráða-
menn. Landið var "selt" og
"gefið" til skiptis. Spyrja má:
Hver var blekktur? Kaupandinn,
seljandinn eða þeir, sem lögðu
trúnað á þennan málflutning?
Menn geta gert svarið upp við
sig sjálfir.
MANNKYNSSAGA FYRIR
BYRJEISIDUR
Undan ferðamannsins fæti
valt steinn úr stað.
Og steinninn hélt áfram að velta,
veistu það?
Og sjö þúsund árum síðar
kom Sing Sing Hó.
Og Sing Sing Hó fékk sér konu,
en konan dó.
Og sjö þúsund árum síðar
kom Ghagga Ghú.
Um Ghagga Ghú finnst hvergi
nein heimild nú.
Og sjö þúsund árum síðar
komst þú, komst þú.
Steinn Steinarr