Sagnir - 01.04.1980, Page 15
Loftur Guttormsson
Fólksfjöldasaga og
söguleg lýdfrædi
Fátt eitt um rannsóknarhefdir
og nýmœli
Á vettvangi félagssögu er
söguleg lýðfræði (historisk
demografi) sú grein sem einna
mestur vöxtur hefur hlaupið í
á síðustu áratugum. Greinin
hefur öðlast viðurkenndan sess
innan sagnfræðinnar vítt um
lönd.allt frá Noregi til Róm-
önsku Ameríku,svo sein alþjóð-
legar ráðstefnur og sérhæfð
tímarit bera vott um. Ætlunin
er að víkja hér nokkrum orðuin
að þroskaskilyrðum greinarinn-
ar,aðferðafræði hennar og þeim
ávinningum sem hún getur státað
af.bæði varðandi spurningar
og svör sem sagnfræðingar reyna
að sækja í greipar fortíðar.
En fyrst er nauðsynlegt að
fjalla nokkuð um eldri fræða-
hefðir á sviði fólksfjölda-
sögu,enda líklegt að þær skýri
að nokkru hví íslenskir sagn-
fræðingar hafa ekki nýtt þá
moguleika sem heimildir sýnast
gefa til rannsókna í anda sögu-
legrar lýðfræði.
Fólksfjö Idasaga
Það er kunnara en frá þurfi
að segja að áhugi manna á þró-
un fólksfjölda í sögunnar rás
er ekki nýr af nálinni,enda
lætur heitið fólks- eða mann-
fjöldasaga(Bevölkerungsge-
schichte,population history)
kunnuglega í eyrum. Þótt fólks-
fjöldastaðreyndir væru eins
konar hernaðarleyndarmál stór-
velda allt fram á 19.öld,hefur
landstjórnar- og fræðimönnum
löngum þótt forvitnilegt að
koma tölu á íbúa þeirra svæða
sem þeir hafa fjallað um hverju
sinni og komast að því hvernig
þeir skiptust eftir byggðum,
stéttum og stigum. Hitt er
ekki að undra þótt erfitt hafi
reynst að komast að áreiðan-
legri niðurstöðu um fólks-
fjölda á fyrri söguskeiðum áður
en nútímaleg hagskýrslugerð
kom til sögunnar (1). Með örfá-
um undantekningum komst hún
ekki í fast horf í ríkjum vest-
anverðrar Evróðu fyrr en á
fyrstu áratugum 19.aldar (2).
Hvað eldri söguskeið varðar
hafa talnafræðingar og sagn-
fræðingar getað beitt hugviti
sínu og hugmyndaflugi æði
frjálslega til að áætla tölu
mannf ólksins.
Nú vill svo kynlega til að
íslendingar eignuðust fullgilt
manntal löngu áður en eðlilegt
hefði mátt telja ef miðað er
við þróunarstig landsins í
sjórnsýslu og skrifræði (3).
Manntalið 1703 er einstæð
heimild í fólksfjöldasögu,
"hið fyrsta sem tekið hefur ver-
ið eftir nútímalegum reglum,
Það tilgreinir nöfn,aldur og
heimilisstöðu sérhvers
hinna 50.358 manna sem þá
byggðu landið".(Imhof,1977:
36),(4) Hvílíkur fyrirburður