Sagnir - 01.04.1980, Page 40
Sogufolsun kommanna
Er hægt að nota söguna í
pólitískum tilgangi?
Já, það er hægt að gera. Ef
við lítum á pólitíska umræðu
hér á landi, þá hefur það oft
slegið mig illa að til skamms
tíma hefur það verið tiltekinn
hópur manna, frekar en að segja
flokkur, sem hefur kannski ver-
ið meira áhugafólk um sögu og
notað hefðbundin sögurök til að
komast að niðurstöðu í sína
þágu. Hér á ég við kommana og
þ,á staðreynd að þeir hafa í
hinni pólitísku baráttu sinni
komið sér upp nokkuð vélrænni
röksemdafærslu, sem er byggð á
sögulegum rökum og gengur út á
það að segja sjálfstæðissögu
íslendinga í gegn um þjóðveld-
ið, 16o2, 1662, sjálstæðisbar-
áttu 19. aldar,iðnbyltinguna
hér, 1918, 1944. SÍðan er þetta
tengt beint yfir í herstöðvar-
málið. Að baráttan fyrir órsögn
úr NATO og það allt saman sé
eitthvert sjálvirkt öögulegt fram-
hald í þessum efnum.
Þessu hefur eiginlega aldrei
verið svarað. Ég er þeirrar
skoðunar að hér sé um að ræða
fullkomlega fölsk söguleg rök.
Hér hefur verið byggð upp nánast
fölsk söguímynd (söguleg goðsögn),
sem margir hafa étið upp, en
fyrir þessu er hefð og saga, sem
á sér rætur aftur til ungmenna-
félagshreyfingarinnar. Þetta er
dæmi um hvernig hægt er að segja
söguna í sína þágu og gera það
mjög villandi.
NÚ megum við ekki gleyma því
að sagan er ekki fræðigrein
nema að mjög takmörkuðu leyti.
Saga er í raun almenningseign,
allir eru notendur og eigendur
hennar. Hinn almenni maður færir
ekki flókin stærðfræðileg rök
íyrir máli sínu en hins vegar
flytti hann gjarnan hin flókn-
ustu sögulegu rök fyrir máli
sínu. Þetta er nokkuð sem sagn-
fræðingar verða að lifa með.
Þeirra fræðigrein er hluti af
hinu daglega lífi og þar er henni
oft beitt sem tilfinningalegu
tæki. Af ásettu ráði bjuggu t.d.
Jón Sigurðsson og fylgismenn
hans til alveg falska goðsögn um
verslunarsöguna, sem tæki í
sjálfstæðisbaráttu 19. aldar.
Raunvísindaleg skoðun verslunar-
sögunnar dregur hins vegar upp
töluvert aðra mynd.
Söguleg rök vega nú ekki eins
þungt og í þá daga. Samfélagið
er alltaf að breytast og menntun
að aukast og undirstaða góðrar^
menntunar er að brjóta niður mót-
sagnir og falskar goðsagnir.
Ég minntist áðan á Þorstein
Thorarensen, en með aldamóta-
sögunni finnst mér hann einmitt
hafa sýnt hugrekki, sem aðrir __
hafa ekki gert áður, í að brjóta
í bága við hefðbundna söguskoðun,
að brjóta niður goðsagnir.
Því má bæta hér við að þegar
menn eru að ganga hér í stjórn-
málaflokka eru þeir auðvitað að
tengjast sögunni með vissum hætti.
Við búum við flokkakerfi sem á
rætur á árunum 1916 til 1930.
Þetta flokkakerfi hefur breyst
merkilega lítið sxðan. Ég tel
hins vegar að saga þessa flokka-
kerfis hafi verið sögð mjög ein-
hliða. Það hafa t.d. verið gefnar
æði frumstæðar skýringar á kosn-
ingaúrslitunum 1934, sem eru
kosningaúrslit, sem valda bylt-
ingu .
Við getum tekið önnur mikil-
væg mál, s.s. lýðveldismálið,
nýsköpunartímabilið, inngönguna
í NATO. Við búum að ég held við
mjög frumstæðar söguskýringar a'
því hvað hér raunverulega hefur
átt sér stað og hafa tilfinninga-
rök verið of áberandi. Einnig
hefur ótrúlega lítið verið skýrt
í hagsögulegu tilliti. Því dýpra
sem maður starfar í stjórnmála-
flokki, þeim mun meira fær maður
þetta á tilfinninguna.
Sagnfrædi eda saga
ÞÚ talar um að lítið hafi
verið skýrt £ hagsögulegu til-
liti. í framhaldi af því,‘ hvert
er álit þitt á sögulegri efnis-
hyggju?